Work

Áhugahvetjandi samtal og langvinnir stoðkerfisverkir. Fræðileg samantekt

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Inngangur: Tíðni langvinnra stoðkerfisverkja er að aukast á heimsvísu og áhrif þeirra geta haft miklar afleiðingar fyrir líkamlega sem og andlega heilsu fólks, sem og samfélagslegan kostnað. Kostir sálfélagslegra aðferða hafa fengið vaxandi vægi innan sjúkraþjálfunar síðustu áratugi sem og mikilvægi samskiptatækni ásamt trausts meðferðarsambands milli skjólstæðinga og sjúkraþjálfara. Áhugahvetjandi samtal er ein þessara aðferða og þessi fræðilega samantekt hefur það að markmiði að lýsa niðurstöðum rannsókna um árangur og áhrif áhugahvetjandi samtals hjá einstaklingum með langvinna stoðkerfisverki. \nAðferðir: Þessi fræðilega samantekt var gerð á rannsóknum sem birtar voru á árunum 2011-2021 og leitað var í gagnagrunnunum PubMed, PEDro and Web of science. PRISMA-ScR gátlistanum var fylgt við framkvæmd hennar. Inntökuskilyrði voru fullorðnir einstaklingar með langvinna stoðkerfisverki sem höfðu fengið áhugahvetjandi samtal í meðferð og þurftu rannsóknir að vera birtar á ensku. Helstu útkomumælingar sem leitast var eftir voru verkjaupplifun, líkamleg virkni, áhugahvöt og meðferðarheldni þátttakenda. Gæði valinna rannsókna voru metin sem og áhætta á bjögun niðurstaðna þeirra. \nNiðurstöður: Við gagnaleit komu upp 316 greinar og fimm þeirra uppfylltu inntökuskilyrði rannsóknarinnar. Fjórar slembiraðaðar samanburðarrannsóknir og ein rannsókn með hálftilraunasniði. Rannsóknir gáfu sterkt til kynna að áhugahvetjandi samtal auki líkamlega virkni, líkamlega færni, áhugahvöt og meðferðarheldni en ósamræmi var í niðurstöðum um hvort áhugahvetjandi samtal hafi jákvæð áhrif á verki. Niðurstöður sýndu ekki fram á meiri heilsutengd lífsgæði, minni þreytu eða minni þunglyndiseinkenni hjá þátttakendum. Valdar greinar voru af góðum gæðum og var áhætta fyrir bjögun metin lítil í þremur greinum, miðlungs í einni grein og mikil í einni grein. \nÁlyktanir: Áhugahvetjandi samtal getur verið fýsilegur kostur fyrir sjúkraþjálfara sem viðbótarmeðferð hjá einstaklingum með langvarandi stoðkerfisvandamál sem þurfa að breyta ákveðinni heilsuhegðun, þá sérstaklega í sambandi við líkamlega færni, virkni, áhugahvöt og meðferðarheldni. Þörf er á frekari rannsóknum sem meta lengd og magn áhugahvetjandi samtals í meðferð sjúkraþjálfara.
Source: Skemman
Author: Guðrún Marín Viðarsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026374819
Cites: 51
Cited by:
Related to: 10