Work

Áhættuþættir ofþjálfunar og álagsmeiðsla barna

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Stór fjöldi barna stunda íþróttir af einhverju tagi og mörg börn stunda tíðar og erfiðar æfingar strax frá unga aldri. Það getur haft neikvæðar afleiðingar í för með sér eins og ofþjálfun og álagsmeiðsli. Forvarnir og fræðsla til þjálfara, foreldra, forráðamanna og íþróttaiðkenda til að draga úr þessum þáttum, er ábótavant. \nRannsóknarspurning: Hvernig er hægt að nýta þekkingu um tengsl milli þjálfunarálags annars vegar og einkenna ofþjálfunarheilkennis og álagsmeiðsla hins vegar, til forvarna í íþróttaiðkun barna? \nAðferðir: Rannsóknarsnið rannsóknarinnar er fræðileg samantekt þar sem ýmsir gagnagrunnar voru notaðir og þýðið eru börn á aldrinum 5-18 ára. \nNiðurstöður: Í megindráttum voru niðurstöður þeirra rannsókna sem skoðaðar voru að magn þjálfunarálags eykur áhættuna á álagsmeiðslum og neikvæðum sálrænum þáttum eins og kulnun. Einnig hafa þættir eins og kyn, kynþroski, vaxtarkippir og sérhæfing líka áhrif. \nÁlyktun: Álagsmeiðsli og einkenni ofþjálfunarheilkennis meðal barna og unglinga sem stunda íþróttir eru algengari en ásættanlegt er og gæti í mörgum tilfellum verið ástæða brottfalls þeirra frá íþróttaiðkun. Hægt væri að nýta það sem þekkt er í dag í forvörnum gegn afleiðingum of mikils þjálfunarálags og auka fræðslu um einkenni ofþjálfunarheilkennis. Þörf er á frekari rannsóknum um efnið til að geta sett fram nákvæmari viðmið.
Source: Skemman
Author: Nadia Margrét Jamchi
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026431331
Cites: 37
Cited by:
Related to: 10