Work

Afturvirk lýsandi rannsókn á breytingum á áhættuþáttum hjá kransæðasjúklingum sem fengið hafa hjúkrunarmeðferð á göngudeild kransæðasjúklinga

Year: 2010
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta orsök ótímabærs heilsubrests og dauðsfalla á Vesturlöndum, þar með talið á Íslandi. Stjórnun áhættuþátta hjá þeim sem eru í áhættuhópi og hjá þeim sem hafa greinst með sjúkdóm getur dregið úr framvindu sjúkdómsins. Gefnar hafa verið út klínískar leiðbeiningar þar að lútandi. Tilgangur þessarar afturvirku lýsandi rannsóknar var að kanna stöðu áhættuþátta hjá þeim sem sótt hafa hjúkrunarmeðferð á göngudeild kransæðasjúklinga á Landspítala. Staða áhættuþátta og lifnaðarhátta við upphaf meðferðar var borin saman við stöðu við lok hennar. Úrtakið voru 80 einstaklingar, innlagðir á hjartadeild Landspítala vegna kransæðasjúkdóms árið 2007 sem komu í tvö eða fleiri viðtöl á göngudeild kransæðasjúklinga eftir útskrift (meðalaldur 59, SF = 10,4 ár, 76% karlar). \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýna að nær allir breyttu einhverjum lifnaðarháttum á meðferðartímanum. Stór hluti sjúklinganna (77%) hafði aukið hreyfingu sína (p = 0,03). Meirihluti reykingafólks (65%) hætti að reykja við innlögn á sjúkrahús og virtist ekki byrja aftur en 15% af úrtaki reykti enn í lokaviðtali (svipað og í fyrsta viðtali). Langflestir sjúklinganna voru yfir kjörþyngd (90%) og 40% voru of feitir og breyttist það ekki á meðferðartímanum. Mikill meirihluti sjúklinganna sagðist í lokaviðtali hafa breytt mataræði eftir veikindin og voru það mun fleiri en í fyrsta viðtali (p = 0,001). Færri sjúklingar greindu frá streitu í lokaviðtali en í upphafi meðferðar (p = 0,001). Meirihluti sjúklinganna (60%) var með of háan blóðþrýsting í fyrsta viðtali og lokaviðtali (≥ 130/80 mmHg). Helstu ályktanir, sem draga má af rannsóknarinni, eru að góð breyting varð á stöðu áhættuþátta hjá þeim sem sóttu meðferð á göngudeildinni en margir þættir hefðu mátt verða betri. Auka þarf stuðning við þá sem reykja, og þá sem þurfa að léttast og bæta þarf blóðþrýstingsstjórnun.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026455577
Cites: 68
Cited by:
Related to: 10