Work

Áhrif gervigreindar á bankastarfsemi

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Undanfarin ár hefur bankageirinn þróast töluvert, sökum mikillra tæknibreytinga. Bankar hafa minnkað starfsemi sína í útibúum og veita stöðugt meiri þjónustu með stafrænum leiðum. Gervigreind er tækni sem bankar hafa notfært sér til að betrumbæta starfsemi sína þar sem hún getur gert fjölmörg störf skilvirkari og hagkvæmari. Í þó nokkur ár hafa þeir m.a. notað hana í þjónustu, forvörnum gegn svindli, stýringu eignasafna og fleiru sem nánar er fjallað um í þessari ritgerð. En spurningin er hvernig munu bankar innleiða og nýta sér nýjustu gervigreindartækni og hver eru áhrif hennar á bankastarfsemi? \nÞegar gervigreind heldur áfram að þróast og verða betri má búast við að bankar haldi áfram að þróa sínar viðskipta- og þjónustuleiðir. ChatGPT er ein af nýjustu þróunum í gervigreind og hefur hún fengið mikla athygli á heimsvísu fyrir getu sína. Þó voru viðtökur banka við ChatGPT ekki góð þar sem stórir bankar eins og CitiGroup, Bank of America, Deutsche Bank, Goldman Sachs og Wells Fargo bönnuðu notkun hennar fyrr á árinu. Því er ljóst að það mun að öllum líkindum taka banka tíma að innleiða nýjustu skapandi gervigreindirnar inn í sína verkferla \nMarkmið ritgerðinnar var að skoða hvaða möguleikar bankar hafa við notkun gervigreindar þegar hún þróast enn meira. Niðurstaðan er að gervigreind mun halda áfram að hafa gífurlega mikill áhrif á starfsemi banka. Þeir munu geta veitt töluvert sérhæfðari þjónustu sem hentar hverjum og einum viðskiptavini og munu einnig einbeita sér enn meira að stafrænni þjónustu. Gervigreind mun halda áfram að sjálfvirknivæða verkefni sem voru áður unnin af mönnum og leysa ný og núverandi verkefni á skilvirkari hátt sem sparar bönkum töluverðan kostnað og tíma. Búast má við að margir sem vinna í bankageiranum missi starf sitt með tilkomu gervigreindar en hún mun einnig skapa ný störf innan bankageirans.
Source: Skemman
Author: Máni Mar Steinbjörnsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026470814
Cites: 4
Cited by: 1
Related to: 10