Work

Áhrif n-3 fitusýra í æti á cAMP framleiðslu eftir örvun beta adrenergra viðtaka í HEK293 frumum

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Fjöldi rannsókna hefur gefið til kynna jákvæð áhrif fjölómettaðra fitusýra á hjartað, sérstaklega omega-3 fitusýra. Komið hefur í ljós að omega-3 fitusýrur fækka marktækt dauðsföllum í kjölfar hjartaáfalls, meðal annars með verndandi áhrifum gegn hjartsláttartruflunum. β-adrenergir viðtakar eru G-prótein tengdir og stjórna meðal annars hraða hjartsláttar og samdrætti hjartavöðva í kjölfar virkjunar með katekólamínum. Fer sú stjórn fram í gegnum boðferli sem meðal annars valda myndun á cAMP í umfrymi. Í hjartasjúkdómum eykst magn katekólamína í blóðvökva og jafnframt binding þeirra við β-adrenerga viðtaka. Ef örvunin er viðvarandi bregðast viðtakarnir við með afnæmingu sem minnkar svörun þeirra við tenglum sínum og dregur úr afköstum hjartans við álag. Markmið verkefnisins var að athuga áhrif omega-3 fitusýra á β-adrenerga viðtaka með notkun HEK293 frumulínunnar, sem hefur slíka viðtaka. HEK293 frumur voru ræktaðar ýmist með eða án dókósahexaensýru í æti. β2-adrenergir viðtakar þeirra voru örvaðir með mismunandi styrkjum af ísópróterenóli og cAMP framleiðsla mæld með ELISA aðferð með tilbúnu mæliefni. Munur á cAMP framleiðslu β-adrenergra viðtaka í frumuhópunum tveimur var metinn með samanburði á mettunarkúrfum þar sem styrkur cAMP var fall af lógariþmanum af ísópróterenólstyrk. Þar sem mestur tími verkefnisins fór í aðferðaþróun tókst aðeins að gera þrjár heppnaðar tilraunir. Þrátt fyrir að fyrri tvær tilraunirnar megi túlka á mismunandi vegu gefur þriðja tilraunin skýrt til kynna að enginn munur sé á frumuhópunum og því er að öllum líkindum ekki marktækur munur á cAMP framleiðslu í frumum með og án DHA í æti. Það fæst þó ekki staðfest nema með fleiri tilraunum.
Source: Skemman
Author: Sunna Björnsdóttir 1992
Language: Icelandic
Field: Nursing
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026532239
Cites: 30
Cited by:
Related to: 10