Áhrif Íþróttaferðamennsku: Ólympíuleikarnir í London 2012
Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er íþróttaferðamennska og þau áhrif sem henni fylgja á borgir og heimamenn skoðuð nánar. Ólympíuleikarnir eru notaðir sem dæmi um stórviðburð í íþróttaferðamennsku og farið er yfir áhrif fyrri leika á borgir og heimamenn. \nÍþróttaferðamennska er ekki nýtt fyrirbæri en er þó grein sem talið er að muni fara ört vaxandi í komandi framíð. Ferðamennska sem tengist íþróttaviðburðum er stór hluti af íþróttaferða-mennsku um allan heim og eru efnahagsleg áhrif þeirra efni rannsókna hjá mörgum fræðimönnum. \nÁhrif ferðamennsku og mismunandi ferðamanna mun verða skoðað nánar og hvernig áhrifin geta verið mismunandi eftir stærð viðburðar og hegðunar ferðamanna. \nÓlympíuleikarnir í London árið 2012 notaðir sem dæmi í þessari ritgerð og áætluð áhrif leikanna á borgina, heimamenn og ferðamenn skoðuð nánar. Leikarnir í London eru þeir þriðju sem haldnir eru í borginni en mikið hefur breyst frá fyrri leikum. Borin verða saman áhrif fyrri leika og þau áhrif sem skipuleggjendur og yfirvöld áætla að verði. Áætlanir segja að fjöldi ferðamanna í borginni muni margfaldast og vonast er til að ferðamennirnir sjái borgina í nýju ljósi og því ferðamenn sem ekki hefðu heimsótt borgina komi á ný. \nMarkmið þessarar ritgerðar er því að skoða hver áætluð áhrif séu og hvernig skipuleggjendur og yfirvöld vonast til að taka á þeim áhrifum.
Source: Skemman
Author: Sandra María Ólafsdóttir 1984
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Sport and Mega-Event Impacts
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026585458
