Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að athuga hvaða þættir hafa hvetjandi og hindrandi áhrif á áhuga nemenda og hvert sé hlutverk kennara í hvatningu. Áhugahvöt nemenda er mikilvæg til þess að nemendur nái árangri í námi. Kenningar tengdar hvatningu og hindrunum í námi eru ræddar og tengdar við niðurstöður \nÍ rannsókninni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við tvo nemendur á lokaári í framhaldsskóla. Tilgangur rannsóknarinnar var að leita svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvaða þættir eru hvetjandi fyrir nemendur til að ná árangri í námi? Hvaða þættir eru hindrandi fyrir nemendur til að ná árangri í námi? Hvert er hlutverk kennara í hvatningu nemenda? Þátttakendur rannsóknarinnar voru báðir á lokaári í framhaldsskóla. Reynt var að greina hvaða þættir eru hvetjandi og hindrandi í námi og hver upplifun nemenda sé af hlutverki kennara. Niðurstöður rannsóknarinnar voru bornar saman við kenningar í menntunarfræði og námssálfræði. \n\tHelstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að þeir þættir sem hvetja nemendur eru fjölbreyttar kennsluaðferðir, eigin áhugi, framtíðarmöguleikar, námsumhverfi, ánægja, almennt ástand, samanburður við aðra, stuðningur og aukinn skilningur. Niðurstöður sýndu að hindrandi þættir í hvatningu nemenda eru almennt ástand, aðrar skyldur, óuppbyggjandi endurgjafir, óskýr fyrirmæli kennara, tilfinningar nemenda og viðmót kennara. Kennarar uppfylla hlutverk sitt við hvatningu með atferli, framkomu, viðhorfi, með því að vera fyrirmynd og með því að auka forvitni nemenda. Veikleika mátti finna í hjálp kennara við markmiðasetningu nemenda og í gegnum endurgjafir. Niðurstöður eru að kennarar hvetja með því að hrósa og hafa hvetjandi áhrif á nemendur þegar þeir sinna hlutverki sínu í hvatningu.
Source: Skemman
Author: Sölvi G Gylfason 1988
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026594819
