Work

Álagsmeiðsli í aðfærsluvöðvum mjaðma hjá knattspyrnufólki. Áhættuþættir og meðferð

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Knattspyrna er ein vinsælasta íþrótt í heimi. Í knattspyrnu er mikið um návígi, tæklingar, stefnu- og hraðabreytingar, en allt eru þetta þættir sem geta aukið hættu á meiðslum. Álagsmeiðsli í aðfærsluvöðvum mjaðma er algengt vandamál hjá knattspyrnufólki. Margar ástæður geta verið fyrir þessum meiðslum og oft eru orsakirnar fleiri en ein. Algengast er að langi aðfærsluvöðvinn verði fyrir meiðslum. Mikilvægt er að þekkja vel til áhættuþátta meiðsla til að geta brugðist við þeim áhættuþáttum sem eru breytanlegir og þannig stuðlað að forvörnum. Áhættuþáttum er hægt að skipta í innri og ytri áhættuþætti þar sem innri þættirnir snúa að einstaklingnum sjálfum en þeir ytri að umhverfinu. Meðferð við álagsmeiðslum í aðfærsluvöðvum mjaðma getur tekið langan tíma. Rétt greining meiðsla og greining á orsakaþáttum meiðsla er mikilvæg í upphafi meðferðar til að meðferðin verði eins hnitmiðuð og kostur er. \nMarkmið þessarar ritgerðar er að fjalla um þá innri og ytri áhættuþætti sem geta haft áhrif á álagsmeiðsli í aðfærsluvöðvum mjaðma hjá knattspyrnufólki og einnig að kynna þau meðferðarform sem henta gagnvart þessum meiðslum. Lítillega er komið inná aðrar orsakir þessara meiðsla og forvarnir.
Source: Skemman
Author: Ásta Árnadóttir 1983
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026740827
Cites: 50
Cited by:
Related to: 10