Work

Aðgengi áfangastaða og ferðavenjur : greining á byggðarskipulagi höfuðborgarsvæðisins

Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Byggðarskipulag höfuðborgarsvæðisins hefur oft verið gagnrýnt fyrir það hversu miðað það er að einkabílnum. Í þessu verkefni verður byggðarskipulag höfuðborgarsvæðisins skoðað út frá aðferðafræði sem þróuð var í Oporto í Portúgal. Aðferðin metur byggðarskipulög út frá aðgengi að mismunandi áfangastöðum eftir mismunandi ferðamátum. Þá er hægt að sjá hvaða staðsetningar innan höfuðborgarsvæðisins veita íbúum þann möguleika á að notast við aðra ferðamáta en einkabílinn. \nÞar sem aðferðin gefur upplýsingar um mögulega ferðamáta er það við hæfi að skoða raunferðavenjur íbúa höfuðborgarsvæðisins í sömu staðsetningum og aðferðinni frá Oporto verður beitt á. Að auki verður aðferðafræði frá Aalborg í Danmörku skoðuð. Henni hefur verið beitt á borgarsvæði Kaupmannahafnar og reynir hún að útskýra hvernig byggðarmynstur, s.s. vegalengdir og þéttleiki hefur áhrif á ferðavenjur og ferðamáta. Notast verður við niðurstöður aðferðarinnar, þegar henni var beitt á borgarsvæði Kaupmannahafnar, til að reyna að útskýra raunferðavenjur íbúa höfuðborgarsvæðisins. \nÍ ljós kom að aðgengi íbúa að mismunandi áfangastöðum er nokkuð misjafnt eftir byggðarskipulagi. Þar sem byggð er þétt og stutt er í þjónustukjarna er aðgengi yfirleitt mjög gott fyrir alla ferðamáta. Staðsetningar sem liggja á jaðri höfuðborgarsvæðisins og því yfirleitt fremur langt frá þjónustukjörnum á hinn bóginn hafa mun minna aðgengi. Niðurstöðurnar sýndu einnig að einkabíllinn er mjög ráðandi ferðamáti og er notkun annarra ferðamáta mjög takmörkuð fyrir vissar staðsetningar. \nÞað háði verkefninu mjög mikið að ekki liggja fyrir niðurstöður úr nýlegri könnun um ferðavenjur íbúa höfuðborgarsvæðisins. Gögnin sem eru notuð eru fremur gömul og í ljós kom að niðurstöður sem þau gefa eru ekki marktækar vegna lítils úrtaks. Verkefnið veitir þó góðar vísbendingar um að aðferðin frá Oporto sé nothæf hér á landi því að hún virðist gefa nokkuð góða mynd af því á hvaða svæðum þarf að bæta aðgengi. \n \nLykilorð: aðgengi,byggðarskipulag, ferðamátar, ferðavenjur.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Transportation
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026752205
Cites: 12
Cited by: 1
Related to: 10