Work

Assessing the effects of “Gamma music” on memory

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Heilinn er einstaklega margslungið líffæri, sem meðal annars þjónar þeim tilgangi að hýsa \nminnið. Þegar virknin í heilanum virkar eins og samstilltar sveiflur, kallast það heilabylgjur \nog eru þær flokkaðar eftir tíðni þeirra. Sérstakur áhugi var fyrir gamma bylgjum, þar sem \ntíðnin sveiflast á milli 30-100 Hz (Bear et al., 2016; Jia and Kohn, 2011; Tichko et al., 2020). \nSamkvæmt rannsóknum hafa gamma bylgjur í heilanum margvísleg áhrif og eru truflanir á \nþeim algengar í ýmsum sjúkdómum t.d. geðklofa (e. schizophrenia) og öðrum \nlyndisröskunum (e. mood disorders) (Gonzales-Burgos et al., 2015; Fitzgerald and Watson, \net al., 2018). Í þessari rannsókn skoðuðum við því sem haldið er fram á ýmsum vefsíðum og \nbloggum hjá t.d. Diaz (2019) um að gamma bylgjur séu tengdar jákvæðum áhrifum á \nendurheimt, hamingju og einbeitingu, þessi áhrif á að vera hægt að örva með sérstakri tónlist \nsem einblínir á að örva gamma bylgjur. Sérstaklega veltum við því fyrir okkur, hefur gamma \nbylgju tónlist áhrif á minnið? \nVegna aðstæðna í samfélaginu (COVID-19) þurfti þessi rannsókn að vera gerð á Internetinu. \nÞátttakendur voru fengnir í gegnum síðuna Prolific og voru 59 einstaklingar (n=59) sem \nkláruðu rannsóknina en taka þurfti hana í tveimur lotum. Þeim var handahófskennt raðað \nniður í þrjá hópa og allir látnir lesa tvær smásögur og svara satt eða ósatt spurningum upp úr \nþeim en einnig reyna leggja á minnið nokkur orð úr stuttum orðalista. Á meðan á rannsókn \nstóð fékk einn hópur gamma tónlist, einn hópur fékk hljóðfæratónlist (ekki gamma) en þriðji \nhópurinn fékk enga tónlist til að hlusta á. Núlltilgátan var sú að gamma tónlist hefur engin \náhrif á minni. Bayes þátturinn sem notaður var sem stöðvunar viðmið við gagnasöfnun var 3 \nmeð eða á móti núlltilgátunni. \nNiðurstöður úr fyrri og seinni lotunni voru svipaðar og sýndu fram á engan marktækan mun á \nmilli hópa. og því er hægt að segja gamma tónlist hafa engin áhrif á minni. Niðurstöður okkar \nrannsóknar gefa til kynna, í þessu samhengi, að tónlist sem á að auka gamma bylgjur \nhafi engin áhrif á frammistöðu minnis.
Source: Skemman
Authors: Bryndís Harpa Björnsdóttir, Sigríður Ásta Pedersen
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026893833
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10