Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Foreldrahlutverkið er krefjandi og það að verða foreldri í fyrsta sinn getur verið stór lífsbreyting. Foreldrar þurfa að aðlagast nýjum kröfum sem geta kallað á miklar áskoranir og ögrað ákveðnum stöðugleika frá fyrra lífi. Að kynnast nýjum einstaklingi, þekkja hans þarfir og sinna þeim ásamt því að sinna eigin þörfum getur verið mikil áskorun. Smitsjúkdómurinn COVID-19 sem fyrst kom fram í desember 2019 og varð síðar að heimsfaraldri hefur haft mikil áhrif á barneignarferli um allan heim sem fyrir þykir mjög krefjandi. Sjúkdómurinn dreifist með snerti- og úðasmiti, hefur misalvarlega birtingarmynd og hefur breiðst hratt út. Í kjölfar COVID-19 hefur þurft að setja á fjöldatakmarkanir, loka skólum og breyta vinnuaðstæðum margra. Markmið þessarar fræðilegu samantektar er að skoða og greina áhrif COVID-19 á þróun foreldrahlutverksins, líðan fjölskyldunnar og barneignarferli til þess að hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk geti betur stutt við foreldra á þessum tímum. Heimilda var aflað í gegnum gagnabanka PubMed og Google Scholar á tímabilinu janúar til mars 2021. COVID-19 faraldurinn hefur haft víðtæk áhrif á þjónustu við foreldra í barneignarferlinu. Skerðing á mæðravernd og viðveru stuðningsaðila í ferlinu hefur haft mikil áhrif á verðandi og nýbakaðar mæður. Mæður upplifa aukið óöryggi og hræðslu í faraldrinum sem hefur neikvæð áhrif á líðan þeirra og fjölskyldur þeirra almennt. Fjölskyldan hefur þurft að einangra sig og því fengið minni stuðning frá fjölskyldu og vinum. Það hefur einnig verið krefjandi fyrir foreldra að aðlaga fjölskyldulíf að breyttum aðstæðum svo sem að vinna að heiman ásamt því að vera með skólabörn sín heima. Heilbrigðisstarfsfólk þarf að vera vakandi fyrir áhrifum breytinga í samfélaginu og í þjónustu í tengslum við COVID-19 faraldurinn á foreldra og fjölskylduna í heild og meta þörf á stuðningi í gegnum barneignarferlið. Það gegnir lykilhlutverki í að halda utan um mæður, veita þeim stuðning, skima fyrir andlegri líðan og vísa þeim á viðeigandi úrræði. Frekari rannsókna er þörf á áhrifum COVID-19 á barneignarferlið þar sem faraldurinn er tiltölulega nýtilkominn og stendur enn yfir.
Source: Skemman
Authors: Magðalena Lára Sigurðardóttir, Sara Hildur Tómasdóttir Briem
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026896537
