Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Almenn hreyfing hefur jákvæð áhrif á bæði andlega og líkamlega vellíðan. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða öndunartíðni og öndunarmagn sem fall af hámarkssúrefnisupptöku (VO2max) meðal frístundahjólreiðamanna og hlaupara. Bæði með beinum og óbeinum mælingum, sem og að bera saman þessar mælingar á milli hjólreiða og hlaupa. Stigmagnandi álagspróf voru tekin á 47 þátttakendum á aldrinum 44,46 ± 10,08 (hjólreiðamenn) og 46,45 ± 10,32 (hlauparar), í samtals 76 mælingum. Þátttakendur voru mældir með Cosmed K5 gasgreiningartæki til að mæla andardrátt beint og TymeWear snjallstuttermabol til að mæla andardráttinn óbeint. Stigmagnandi álagsprófin voru framkvæmd á bæði innihjóli og hlaupabretti, á hjóli hófst það við 75W álag, jókst um 25W á 3ja mínútna fresti, og hlauparar byrjuðu á 5 km/klst hraða, jókst hann um 1 km/klst á 3ja mínútna hraða. og var stöðugur 1% halla, Niðurstöður úr endurteknum mælingum af þríhliða ANOVA sýndu marktækan mun á á öndunartíðni á milli íþróttar og ákefðar (F(3,1. 39,4) = 3,7. p = 0,012), Einnig fanst marktækur munur í benum mælingum á milli kyns og ákefðar (F(4,4. 1,0) = 13,1. p < ,001) og íþróttar og ákefðar (F(4,4. 0,5) = 6,9. p < ,001) \nÍ beinum mælingum og í óbeinum mælingum milli kyns og ákefðar (F(2.,7. 10718,8) = 2,8. p = ,048), Niðurstöður á öndunarrúmmáli eru í samfæmi við fyrri rannsóknir bæði fyrir beinar og óbeinar mælingar. hið sama gildir um beina mælingu á öndunarrúmmáli. Frekari rannsóknir eru nauðsynlegar fyrir þessa tilteknu tegund af óbeinum mælingum og skilgreining á einingu þeirra fyrir rúmmál er nauðsynleg. \n \n \nLeitarorð: Öndunartíðni, öndunarrýmd, öndunarmagn, hámarkssúrefnisupptaka, VO2max, hjól, hlaup, hreyfing.
Source: Skemman
Author: Jón Oddur Guðmundsson
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Physiology (medical)
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026941098
