Work

Aska, kynjafræðileg skáldsaga

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Aska, kynjafræðileg skáldsaga, er óhefðbundin nálgun á akademísk fræði og skapandi skrif. Ég nálgast viðfangsefnið út frá femínískri þekkingarfræði Donnu Haraway (1991), Söndru Harding (1991) og Patriciu Hill Collins (2000) um vægi jaðarsettra sjónarhorna í rannsóknum ásamt gildi óhefðbundinnar aðferðafræði. Frásögn hefur lengi verið nýtt af jaðarsettum hópum til að búa til og staðsetja nýja þekkingu sökum takmarkaðs aðgengis viðkomandi hópa að ríkjandi þekkingarsköpun. Ritgerð þessi er tilraun til þess að veita óhefðbundinni aðferðafræði réttmætan sess innan akademískra fræða. \nRitgerðinni er skipt í tvo hluta. Fyrri hluti hennar er í formi fyrsta þriðjungs skáldsögu og byggist að hluta til á viðtölum við 15 einstaklinga sem skilgreina sig utan tvíhyggju kynjakerfisins er varðar kynhneigð, kyngervi, kynjahlutverk og kynvitund með tilliti til umfjöllunar Mimi Marinucci (2010) og Eve Sedgwick (1990) um hinsegin fræði. Þær spurningar sem ég leitaðist við að svara í rannsóknarferlinu voru m.a. hver væri upplifun og reynsla þeirra sem ekki finna sér stað í tvíhyggjuhugmyndum kyngervis, kyn(ja)hlutverka, kynvitundar og kynhneigðar? Hvernig liti það samfélag út sem tæki mið af reynslu og upplifun þeirra sem standa utan við hefðbundnar skilgreiningar samfélagsins á ofannefndum þáttum? Og hvernig myndu þessir sömu þættir koma fyrir sem æskilegur hluti af femínísku jafnréttissamfélagi? \nÆtlunin er að fjalla um mögulegt samfélag jafnréttis í málum kyngerva, kynhneigðar, kynvitundar og kynjahlutverka. Leiðarvísirinn að þeirri veröld liggur í miðjusetningu jaðarsettra viðhorfa og lífsreynslu hinsegin einstaklinga ásamt femínisma undir áhrifum margbreytileika. Í öðrum hluta er fjallað um fræðilega nálgun, aðferðafræði og niðurstöðu gagnaúrvinnslu.
Source: Skemman
Author: Hertha Richardt Úlfarsdóttir 1983
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7026990334
Cites: 16
Cited by:
Related to: 10