„Að heyja stríð fyrir frið?“ Orðræðugreining á umfjöllun íslenskra fjölmiðla um innrásina í Írak árið 2003 og loftárásirnar á Líbíu árið 2011
Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er ljósi varpað á orðræðu íslenskra fjölmiðla um innrásina í Írak árið 2003 og loftárásirnar á Líbíu árið 2011. Markmiðið er ekki að kryfja raunverulega atburðarás hernaðaraðgerðanna, heldur að greina orðræðu íslenskra fjölmiðla, það er hvernig þeir fjölluðu um þær og hvaða hugmyndir birtust í umfjöllun þeirra, með sérstöku tilliti til réttlætingar á hernaðaraðgerðunum eða gagnrýni á þær. Mótunarhyggja, póststrúktúralismi, dagskrárvald fjölmiðla sem og innrömmunaráhrif mynda þann kenningaramma sem rannsóknin byggir á. Með því að tvinna saman hugmyndum þessara kenninga er fjallað um það hvernig við fáum upplýsingar um alþjóðamál í gegnum fjölmiðla og hvaða mögulegu áhrif þessi fjölmiðlaumfjöllun hefur haft á hugmyndir okkar um átökin. Í orðræðunni voru greind ákveðin þrástef. Varðandi innrásina í Írak voru fjögur þrástef greind: Óvinurinn Saddam Hussein: Harðstjóri og hryðjuverkamaður, Innrásinni miðar áfram, „Í hrópandi ósamræmi við vilja þjóðarinnar“ og „Stríðið sem við sjáum ekki.“ Varðandi Líbíu voru þrjú þrástef greind: Óvinurinn Moammar Gaddafi: Morðsjúki einvaldurinn og óði hundurinn, Mótmælendur í sviðsljósinu: Ljáðu félagsmiðlar almenningi rödd? og Klofningur í ríkisstjórn Íslands varðandi hernaðaraðgerðir í Líbíu. Þrástefin varpa ljósi á að í báðum tilfellum hefur orðræða íslenskra fjölmiðla mörg einkenni „stríðsorðræðu“ þar sem Saddam Hussein og Moammar Gaddafi voru rammaðir inn í hlutverk óvinarins. Þá átti sér stað ákveðin „öðrun“ og var áhersla lögð á þætti sem gerði einræðisherrana frábrugðna „okkur.“ Niðurstöður orðræðugreiningarinnar benda til að umfjöllun íslenskra fjölmiðla um hernaðaraðgerðirnar í Írak og Líbíu rími við niðurstöður erlendra rannsókna, það er að fréttir af stríðsátökum séu gjarnan rammaðar inn á svipaðan hátt. Megin áhersla er lögð á að flytja fréttir af framgangi hernaðaraðgerðanna og stríðandi fylkingum. Um leið fer minna fyrir öðrum þáttum, eins og mannúðarsjónarmiðum eða umfjöllun um siðferðislegar hliðar átakanna.
Source: Skemman
Author: Elín Jórunn Baldvinsdóttir 1977
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7027045505
