Work

The climatic signal in the stable isotope record of a shallow ice core from North West Greenland

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Stöðugar vetnis- og súrefnissamsætur voru mældar úr efstu 39,4 m úr 80 m löngum ískjarna, NEEM S2 08, frá Norð-Vestur Grænlandi. Nákvæm aldursgreining kjarnans sem fyrst og fremst er byggð á talningu 18O árlaga sýndi að mældur hluti hans spannar tímabilið frá 1902 til 2007. Samband milli lofthita og súrefnissamsætna er vel þekkt og í fyrri hluta ritgerðarinnar er meðalárshiti reiknaður og breytingar á honum rannsakaðar. Samsætuferlar voru leiðréttir vegna flakks (e. diffusion) samsætna og árstíðarbundinn munur samsætna og tvívetnisauka rannsakað. Í seinni hluta ritgerðarinnar voru samsætuferlarnir bornir saman við þekkta loftslagsstika af þessu svæði, ásamt hitastigsmælingum frá Stykkishólmi, með því að beita línulegri aðhvarfsgreiningu. Í Baffin Flóa, vestanmegin við Grænlandsstrendur, hafa ísþekjumælingar verið gerðar síðan 1979. Með því að nota samsætuferil súrefnis úr NEEMS208 kjarnanum, ásamt hitastigi Illulisat á V-Grænlandi, var sjávarísþekja Baffin Flóa aftur til ársins 1902 metin með fjölbreytu-aðhvarfsgreiningu. Ferillinn veitir mikilvæga innsýn inn í þann breytileika sem hefur átt sér stað á veðurfari Norðurheimsskautasvæðisins á tuttugustu öldinni.
Source: Skemman
Author: Hera Guðlaugsdóttir 1981
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7027196743
Cites: 46
Cited by:
Related to: 10