Deildarstjórar á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu og stjórnun starfsmannamála: Helstu verkefni, færniþættir og líðan í starfi.
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknin fjallar um upplifun og reynslu millistjórnenda, sem eru deildarstjórar á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu, af stjórnun starfsmannamála. Markmiðið er að kanna hvaða verkefnum starfsmannamála þeir sinna, hvaða færni þeir telja mikilvæga til að sinna starfsmannamálum og hvaða leiðir þeir telja mikilvægar til að efla þá færni. Jafnframt að fá innsýn í líðan þeirra í starfi þegar kemur að stjórnun starfsmannamála. Eigindlegri rannsóknaraðferð var beitt til þess að fá fram svör við rannsóknarspurningum og var nálgunin tilviksrannsókn. Tekin voru viðtöl við átta deildarstjóra á fimm hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu. \nHelstu niðurstöður sýna að starfsmannamál voru veigamikill og mikilvægur hluti af starfi viðmælenda. Þeir báru ábyrgð á fjölbreyttum verkefnum starfsmannamála, en ábyrgðin var mismikil eftir deildarstjórum og þeim hjúkrunarheimilum þar sem þeir störfuðu. Lykilfærniþættir fyrir stjórnun starfsmannamála voru færni í að greina aðstæður, samskiptafærni og færni í virkri hlustun. Helstu leiðir sem viðmælendur töldu mikilvægar til að efla þá færni voru nám og námskeið, að læra af reynslunni og að læra af sér reyndari aðilum. Auk þess voru samskipti og stuðningur mikilvægir þættir í að efla þekkingu og færni þegar kom að starfsmannamálum. Þegar á heildina er litið var upplifun viðmælenda af stjórnun starfsmannamála jákvæð og lýstu viðmælendur almennt góðri líðan í starfi þegar kom að starfsmannamálum. Starfsmannamál voru talin skemmtileg og gefandi þrátt fyrir að geta verið krefjandi áskorun, þar sem mikil orka og tími fór í að sinna erfiðum starfsmannamálum. Sumir viðmælendur upplifðu því álag og streitu af stjórnun starfsmannamála, en voru meðvitaðir um mikilvægi stuðnings og jafnvægis milli einkalífs og vinnu til að draga úr hættu á að upplifa streitu og kulnun í starfi. Niðurstöður benda til þess að mikilvægt sé fyrir deildarstjóra á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu að fá aukið sjálfræði, stuðning og tækifæri til færniþróunar til þess að geta sinnt verkefnum starfsmannamála enn betur og stuðla þannig að vellíðan þeirra í starfi. Því geta þessar niðurstöður gagnast stjórnendum hjúkrunarheimila og öðrum sem vilja bæta vinnuumhverfi og líðan millistjórnenda í starfi.
Source: Skemman
Author: Unnur Guðjónsdóttir 1985
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Geriatrics and Gerontology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7027454660
