Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Samhengisfrjálsar mállýsingar eru ekki almennt notaðar til að þátta mannleg tungumál en eru á hinn bóginn notaðar til að þátta forritunarmál. Í tilviki forritunarmála má mállýsingin ekki vera margræð heldur má þáttari, sem byggir á henni, aðeins skila af sér einu þáttunartré. Þá kröfu er hvorki hægt né æskilegt að uppfylla þegar kemur að málvinnslu þar sem setningar í mannlegum tungumálum eru í eðli sínu margræðar. Þess vegna þarf að velja þáttunarreiknirit sem ræður við margræðni og skilar af sér mörgum þáttunartrjám. Greynir, sem er þáttari fyrir íslensku þróaður af Miðeind ehf., notar þáttunarreiknirit Jay Earleys sem Elizabeth Scott breytti þannig að það skili af sér þáttunarskógi (e. Shared Packed Parse Forest). Eftir þáttun er síðan hverju tré í skóginum gefið einkunn byggt á ákveðnum reglum og því tré skilað sem hæstu einkunnina hlaut. \n \nÍ þessari rannsókn er skoðað hvort og hvernig megi framkvæma einræðinguna um leið og sjálf þáttunin fer fram. Þetta er gert með frekar breytingum á Earley-Scott reikniritinu. Sett er fram aðferð til að gefa hnútum í þáttunarskóginum einkunn, sýnt hvernig einkunnir hnútaafkvæma eru lagðar saman af hnútaforeldrum með endurkvæmum hætti frá laufbotni skógarins upp til rótar. Þannig er hægt að eyða undirtrjám sem hafa lægri samanlagða einkunn þegar hægt er að velja á milli tveggja eða fleiri trjáa vegna margræðni. Vandamál sem krefst þess að beðið sé með að gefa endahnútum einkunn þar til síðar í þáttunarferlinu er útskýrt og bent á lausn þar að lútandi. \n \nÞegar einkunnagjöf endahnúta er frestað, veldur það óásættanlegri lengingu á þeim tíma sem tekur að þátta setningar. Tímaflækjustuðullinn er a.m.k. O(n3) sem veldur því að þáttun getur tekið allt að því 34 sinnum lengri tíma sé miðað við sumar lengri setningarnar sem prófaðar voru.
Source: Skemman
Author: Róbert Badí Baldursson 1976-
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Artificial Intelligence
Field: Computer Science
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7027578194
