COVID-19: Bólusetningarþátttaka innflytjenda. Tengsl trausts til stjórnvalda og trúar á samsæriskenningar við bólusetningarvilja innflytjenda frá Austur-Evrópu.
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Dreifing á bóluefnum gegn COVID-19 hefur gjörbreytt gangi heimsfaraldursins í mörgum ríkjum heims. Bóluefni hafa ekki einungis dregið úr dánartíðni fólks heldur einnig gert ríkjum kleift að fella niður allar takmarkanir sem snéru að sóttvarnaraðgerðum. Aftur á móti er dvínandi bólusetningarþátttaka sífellt meira vandamál bæði meðal þróunarríkja og þróaðra landa. Alþjóðleg tölfræði og rannsóknir benda til að bólusetningarhik sé meira meðal borgara ríkja í Austur-Evrópu en í Vestur-Evrópu. Þessar niðurstöður vekja spurningar um bólusetningarþátttöku innflytjenda frá Austur-Evrópu sem búsettir eru hér á landi. Ólíkar ástæður liggja að baki ákvörðun einstaklinga um að afþakka bólusetninguna, til dæmis pólitískt vantraust, misvísandi upplýsingar um bóluefni eða upplifun á samfélagslegri ábyrgð. Þetta rannsóknarverkefni byggir á megindlegri rannsókn og er markmið hennar að öðlast þekkingu um hlutverk trausts til stjórnvalda og samsæriskenninga þegar kemur að bólusetningarvilja innflytjenda frá Austur-Evrópu á Íslandi gegn COVID-19. Rannsóknin var framkvæmd í formi spurningakönnunar meðal hentugleikaúrtaks 162 einstaklinga. Niðurstöður leiða í ljós að þeir þættir sem spá sterkast fyrir um bólusetningu innflytjenda við COVID-19 var trú á samsæriskenningar tengdum COVID-19 (neikvætt samband), skoðun á því að kórónaveiran sé hættulegur smitsjúkdómur, upplifun á samfélagslegri ábyrgð og viðhorf um að bólusetning sé nauðsynleg forvörn við sjúkdómnum. Traust til stjórnvalda sýndi fram á veik tengsl við bólusetningarþátttöku og því er ekki hægt að álykta um að pólitískt traust hafi áhrif á bólusetningarvilja innflytjenda frá Austur-Evrópu á Íslandi.
Source: Skemman
Author: Katrín Lea Elenudóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7027635497
