Er nýgengi og notkun svefnlyfja breytilegt eftir landssvæðum, aldri og kyni?
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Svefn er virkt ástand heilans sem hefur það hlutverk að móta taugar, styrkja minni og tekur þátt í hita- og ónæmisstjórnun líkamans. Ætla má að svefnvandamál sé eitt algengasta heilsufarsvandamál Íslendinga í dag en svefnlyf eru mikið notuð hér á landi. Í samanburði við önnur Norðurlönd nota Íslendingar um það bil 2svar sinnum meira af svefnlyfjum. \n \nMarkmið: Að rannsaka hvort þróun svefn- og róandi lyfja væri mismunandi eftir aldri, kyni og landssvæðum með nýgengi og algengi. Undirmarkmið voru að kanna hvaða svefn- og róandi lyf eru mest notuð í dag í nýgengi og algengi og hvort fjöldi lyfjaúttekta væri mismunandi eftir mánuðum og árstíðum. \n \nAðferðir: Notast var við gögn úr lyfjagagnagrunni Embættis landlæknis sem ná yfir notkun þjóðarinnar á svefn- og róandi lyfjum á árunum 2003-2013. Einstaklingum var skipt niður eftir aldri, kyni og umdæmum. \n \nNiðurstöður: Notkun svefn- og róandi lyfja eykst með hækkandi aldri og nýgengi og algengi meðal kvenna er töluvert hærra en meðal karla. Þetta á við í öllum umdæmum og nánast öllum aldurshópum. Þróun svefn- og róandi lyfja á árunum 2003-2013 er svipuð eftir landshlutum. Flestar úttektir svefn- og róandi lyfja áttu sér stað yfir vetrartímann á þeim árum sem rannsóknin nær yfir. \n \nÁlyktanir: Notkun svefn- og róandi lyfja meðal kvenna eykst mikið í kringum þann aldur sem tíðahvörf eiga sér stað sem er í samræmi við aðrar rannsóknir. Svefn- og róandi lyf sem ávísuð eru sjúklingum í fyrsta skipti hafa ekki breyst á árunum sem rannsóknin nær yfir. Zópiklón er mest notað af öllum lyfjunum og er því ljóst að z-lyf henta betur til meðhöndlunar svefnleysis heldur en benzódíazepín líkt og aðrar rannsóknir hafa gert grein fyrir. Mesti fjölbreytileikinn í lyfjavali virtist vera á Höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og á Suðurnesjum. Minnkaður birtutími á Íslandi á veturna getur leitt til aukinna lyfjaúttekta á svefn og róandi lyfjum.
Source: Skemman
Author: Tinna Arinbjarnardóttir 1990
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Sleep and related disorders
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7027976294
