Work

„Eftir höfðinu dansa limirnir“: Tilviksrannsókn á samskiptafærni stjórnenda ríkisstofnana og samskiptahæfnihluta stjórnendastefnu ríkisins

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn er ljósi varpað á þarfir, upplifun, viðhorf og reynslu starfsfólks ríkisstofnana hvað varðar samskiptafærni stjórnenda. Einnig er innihald samskiptahluta stjórnendastefnu ríkisins og vinnuskjal tengt stefnunni greint í samhengi við fræðilegt sjónarhorn um samskiptaþátt stjórnendastarfsins og niðurstöður viðtala. Tilgangurinn er að álykta hvort hann endurspegli þær kröfur sem gera þarf til samskiptafærni stjórnenda ríkistofnana. Notast var við eigindlega aðferðarfræði og flokkast rannsóknin sem fjöltilviksrannsókn. Tekin voru átta viðtöl við starfsmenn fjögurra ríkisstofnana og rýnt í fyrirliggjandi gögn. \nNiðurstöður gefa skýrar vísbendingar um að margt megi bæta hvað varðar samskiptafærni stjórnenda ríkisstofnana. Upplýsingaflæði þarf að vera markvissara og ná til allra starfamanna og huga þarf sérstaklega að upplýsingagjöf í breytingarferli. Ákvarðanataka þarf að vera skilvirkari og gefa þarf ákveðið ákvarðanatökuumboð til stjórnenda á neðri stjórnstigum. Vísbendingar eru um að samskiptafærni stjórnenda hafi áhrif á árangur stofnana. Það sem þarf að bæta er hvernig stjórnendur nýta samskiptahluta stjórnunarstarfsins til að fylgjast með frammistöðu starfsfólks og lesa og greina starfsmannahópinn. Auk þess þarf að bæta það hvernig þeir taka á erfiðum málum á stofnunum og hrósa starfsfólki. Hvað greiningu á samskiptahæfnihluta stjórnendastefnunnar varðar varpa helstu niðurstöður ljósi á að engum þætti sé ofaukið en vöntun virðist vera á ákveðnum hæfniskröfum innan samskiptahlutans, til dæmis hlustunarþættinum, færni við að lesa og greina starfsmannahóp, átta sig á góðum leiðum við upplýsingamiðlun og færni stjórnenda við upplýsingamiðlun í breytingarferli.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028074233
Cites: 74
Cited by: 1
Related to: 10