Work

Employment and adults with autism : what is the employment status for autistic adults in Iceland : challenges and obstacles

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Áætlað er að 1-3% almennings sé með einhverfu. Einhverfu fylgir oft erfiðleikar í félagslegum samskiptum og tengslamyndun. Rannsóknir hafa sýnt fram á að aukið atvinnuleysi ríki hjá einhverfum. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að kanna atvinnustöðu einhverfra á Íslandi og að kanna hvort að menntunarstig þeirra samsvari atvinnu. Einnig var lögð fram tilgáta um að konur með einhverfu væru líklegri til þess að hafa vinnu sem samsvari menntunarstigi. Spurningalisti var unninn með aðstoð Einhverfusamtakanna. Alls voru 86 þátttakendur sem tóku þátt í rannsókninni. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að atvinnuleysi þýðisins mældist 30,7%. Atvinnuleysi á Íslandi var 5,05% á sama tíma og rannsóknir var gerð. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýndu að þeir sem höfðu meiri menntun voru líklegri til að segja að menntunarstig tengdist starfi þeirra. Ekki var marktækur kynjamunur á menntunarstigi og atvinnu sem samsvarar því. Þessar niðurstöður varpa ljósi á stöðu einhverfra á Íslenskum vinnumarkaði. Þessi rannsókn ýtir undir frekari þörf á rannsóknum á atvinnumálum sem einhverfir einstaklingar á Íslandi standa frammi fyrir. \nEfnisorð: einhverfa, atvinnuleysi, samskipti, menntun, íslenskur vinnumarkaður
Source: Skemman
Authors: Camilla Rós Þrastardóttir, Lovísa Kristín Þórðardóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028180611
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10