Eftirlit með blóðsykri og meðferð við blóðsykurslækkun nýbura. Afturskyggn rannsókn á einum árgangi nýbura við Landspítala
Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvernig staðið er að eftirliti með blóðsykri og meðferð við blóðsykursfalli nýbura á Landspítala háskólasjúkrahúsi og athuga hvort unnið sé samkvæmt því sem fræðin segja til um. Þær rannsóknarspurningar sem leitast var við að svara eru: Við hvaða blóðsykursgildi er gripið til meðferðar við of lágum blóðsykri? Hverjar eru meðferðir við blóðsykursfalli nýbura á Landspítala háskólasjúkrahúsi? Eru þær í samræmi við fræðin? Um er að ræða megindlega, faraldsfræðilega og afturskyggna rannsókn þar sem notast var við lýsandi rannsóknarsnið. Rannsóknargögnin voru fengin úr sjúkraskrám úrtakshópsins. Þýði rannsóknarinnar eru allir nýburar fæddir á Landspítala sem gengust undir eftirlit á blóðsykri fyrstu þrjá sólarhringana eftir fæðingu. Úrtakið er hentugleikaúrtak, nýburar fæddir á árinu 2010 og blóðsykursmælingar voru til um. Loka fjöldi úrtaksins voru 955 nýburar eða rúm 27% af alls 3468 börnum sem fæddust á Landspítalanum árið 2010. Flest (n=742) börnin eftir fulla meðgöngu, 391 fengu ábótargjöf, 94 börn fengu sykurlausn í æð. Samkvæmt niðurstöðum eru mörg börn að fá ábót mjög snemma sem mögulega er vegna blóðsykursmælinga of snemma. Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar sinni störfum sínum í samræmi við síbreytilega fræðilega þekkingu og af fagmennski. Hjúkrunarfræðingar þurfa að vera vakandi fyrir því að rannsóknir og meðferðir sem nýburinn gengur í genum séu á réttum grundvelli. Því er nauðsynlegt að fylgst sé með því verklagi sem tíðkast til að viðhalda faglegri þróun á grunvelli fræðilegrar þekkingar. \n \nLykilorð: Nýburar, blóðsykur, blóðsykursmæling, blóðsykurslækkun, meðferð við blóðsykurslækkun
Source: Skemman
Author: Guðný Svava Guðmundudóttir 1985
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Endocrinology, Diabetes and Metabolism
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
SDG: Zero hunger
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028242869
