Work

Félagsstarf fyrir eldra fólk með þroskahömlun

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Verkefni þetta fjallar um félagsstarf fyrir fólk með þroskahömlun en sjónum er beint að fólki sem komið er á efri ár. Lítið er til af rannsóknum sem tengjast félagsstörfum eldra fólks á með þroskahömlun og því fannst okkur mikilvægt að skoða málefnið nánar. Markmið ritgerðarinnar er því að skoða hvers konar starf fer fram á þeim stöðum sem bjóða upp á félagsstarf fyrir fólk með þroskahömlun. Ákveðið var að byggja umfjöllunina annars vegar á fræðilegum heimildum og hins vegar afla gagna með vettvangsheimsóknum. Fræðilegur bakgrunnur verkefnisins byggir á þróun hugmyndafræðinnar frá 20. öld til dagsins í dag ásamt því að áhersla er lögð á að fjalla um öldrun fólks með þroskahömlun út frá lífshlaupskenningum. Niðurstöður verkefnisins leiddu í ljós að félagsstarf fyrir fólk með þroskahömlun fer fram með skipulögðum hætti, oftast í dagþjónustum og einkennist af námskeiðshaldi. Fjölbreytt úrval námskeiða stendur þeim til boða og eru þau meðal annars tengd útivist, matreiðslu, menningarviðburðum og svo lengi mætti telja. Einnig leiddu niðurstöðurnar í ljós að lífshlaup fólks með þroskahömlun einkennist af einni samfellu þar sem þessi hópur hefur í mörgum tilfellum verið að sækja félagsstörf alla sína ævi. Það væri því æskilegt ef fólk með þroskahömlun sem er á efri árum myndi nýta sér meira almenn tilboð í framtíðinni til þess að brjóta upp hefðbundið lífsmynstur.
Source: Skemman
Authors: Íris Björk Grant 1993, María Sif Óladóttir 1993
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028343580
Cites: 9
Cited by:
Related to: 10