Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Hefð er fyrir því í skipulagsmálum að íbúar og aðrir hagsmunaaðilar fái að hafa áhrif á ákvarðanir stjórnvalda í skipulagi hérlendis. Stjórnvöld nálgast samráð við íbúa á mismunandi hátt enda hægt að nýta ýmsar aðferðir við íbúasamráð. \nMarkmið þessarar rannsóknar er að skoða hvernig íbúasamráði er háttað við gerð hverfisskipulaga í Reykjavík og við gerð stærri deiliskipulagsáætlana í Reykjavík. Um er að ræða empíríska eigindlega rannsókn þar sem notast er við eigindlega spurningakönnun til þess að safna gögnum. Rannsóknarspurningarnar eru tvær, sú fyrsta leitast eftir því að svara hvað felst í árangursríku samráði og sú seinni skoðar hvort eða hvernig samráð við gerð hverfisskipulags og deiliskipulags í Reykjavík geti talist árangursríkt. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að virkt samtal á milli stjórnvalda og íbúa þar sem stjórnvöld höfðu gagnsæi að leiðarljósi er merki um góðan árangur í samráði við skipulagsgerð. Þar að auki kom í ljós að samráð við gerð hverfisskipulaga í Reykjavík leggur meiri áherslu á virkt samtal og gagnsæi stjórnvalda heldur en er í samráði við gerð deiliskipulaga í Reykjavík.
Source: Skemman
Author: Birgitta Rut Skúladóttir Hjörvar
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Geography, Planning and Development
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028385490
