Forysta til framtíðar: Þjónusta gagnvart hagsmunum heildar - Áherslur stjórnenda framúrskarandi fyrirtækja
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Víða um heim er kallað eftir breyttum áherslum forystufólks á hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Kallað hefur verið eftir því að leiðtogar framtíðarinnar sýni ábyrgð, samstarfsvilja, réttsýni og beri hag fólksins, samfélagsins og umhverfisins fyrir brjósti. Í samræmi við það ákall má nú greina breyttar áherslur hjá skipulagsheildum, hvort heldur sem er hjá fyrirtækjum eða stofnunum, sem tengjast í auknum mæli innleiðingu samfélagslegrar ábyrgðar og sjálfbærni í stefnu og rekstri skipulagsheilda samhliða megináherslu á árangursrík samskipti við starfsfólk og aðra hagsmunaaðila. Markmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í áherslur leiðtoga fyrirtækja hér á landi, sem hlotið hafa viðurkenningu VR sem „fyrirtæki ársins“, varðandi þjónustu gagnvart hagsmunum heildarinnar. Þá var jafnframt leitast við að varpa ljósi á hvort og þá hvernig þessar áherslur birtast hjá viðkomandi fyrirtækjum í þjónustu þeirra og ábyrgð gagnvart hagsmunaaðilum sínum, s.s. í stefnu þeirra, áætlunum, tilgangi, daglegu starfi og samskiptum. Í rannsókninni var unnið eftir eigindlegri aðferðafræði. Eftirfarandi þemu spruttu fram við greiningu gagna: 1) „Þetta snýst bara allt um samskipti, bara samskipti við fólk“; 2) „Við erum í þessu saman, við erum í samvinnu“ og 3) „Alltaf að hugsa aðgerðir okkar sem langhlaup“. Að teknu tilliti til þeirra þema sem birtust í niðurstöðum rannsóknar má sjá vísbendingu um grunnáherslu viðmælenda á velferð starfsfólksins þar sem lagt er upp úr góðum og uppbyggilegum samskiptum. Þessar áherslur í samskiptum við starfsfólk innanhúss endurspeglast í kjölfarið í áherslum við aðra hagsmunaaðila utanhúss, þ.e. viðskiptavini, samstarfsaðila, hluthafa og samfélagið í heild. Samskiptin skapa þannig grundvöll fyrir náinni samvinnu og sameiginlegum vexti gagnvart öllum hagsmunaaðilum með áherslu á traust og sjálfbæra starfshætti sem forsendu fyrir sköpun á sameiginlegu virði sem þjónar hagsmunum heildarinnar til lengri tíma. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingu um að viðmælendur sýni merki þjónandi forystu í áherslum sínum varðandi stjórnun og þjónustu gagnvart hagsmunum heildarinnar.
Source: Skemman
Author: Bjarki Sigurðarson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: organizational values, corporate social responsibility, corporate governance, future of work, organizational culture, employee well-being, employee engagement, organizational communication, employee participation, employee feedback, employee recognition, employee motivation, employee retention, employee empowerment
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028399640
