Work

Frásagnargeta 6 til 8 ára barna, með og án málþroskaröskunar, í íslensku sem öðru máli

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tvítyngd börn hafa oft minni reynslu af báðum málum en eintyngd börn og getur því reynst erfitt að greina hvort frávik í málþroska tvítyngdra barna stafi af málþroskaröskun eða hvort máltileinkun barnanna sé hægari sökum tvítyngis. Í þessari rannsókn var sjónum beint að formi og notkun í frásögnum barna sem hafa íslensku sem annað mál, með og án málþroskaröskunar. Jafnframt var athugað hvaða breytur aðgreina best á milli barna sem hafa íslensku sem annað mál, með og án málþroskaröskunar. Þátttakendur voru 29 börn með íslensku sem annað mál í 1. til 3. bekk grunnskóla. Samtals voru 13 þeirra með staðfesta málþroskaröskun og 16 með dæmigerðan málþroska. Tekin voru frásagnarmálsýni hjá öllum þátttakendum í rannsókninni. SALT (Systematic Analysis of Language Transcripts) matskerfið var notað til að meta meðallengd segða og efnisþætti frásagna. Að auki var Milli mála lagt fyrir og bullorðapróf með íslenskulegum og óíslenskulegum bullorðum. \nFrammistaða barna með íslensku sem annað mál og greinda málþroskaröskun var marktækt lakari á heildartölu Milli mála, íslenskulegum og óíslenskulegum bullorðum en hjá börnum með íslensku sem annað mál og dæmigerðan málþroska. Ekki var marktækur munur á meðallengd segða, efnisþáttum frásagna og heildartölu fyrir frásagnir milli hópanna. Eigi að síður kom fram skýr tilhneiging í átt að þroskaðri frásagnargetu í hópi barna með íslensku sem annað mál og dæmigerðan málþroska en hjá börnum með íslensku sem annað mál og greinda málþroskaröskun. Talsverð skörun er í dreifingu á frásagnargetu hópanna. Óíslenskuleg bullorð aðgreina best á milli barna með íslensku sem annað mál, með og án málþroskaröskunar. Meginniðurstöður rannsóknarinnar eru að málfærni barna með íslensku sem annað mál og greinda málþroskaröskun er lakari en málfærni barna með íslensku sem annað mál og dæmigerðan málþroska. Munur á milli hópanna er mestur í endurtekningu óíslenskulegra bullorða. Að auki benda niðurstöðurnar til þess að hægt sé að aðgreina þessa hópa með viðunandi nákvæmni og án verulegs kostnaðar með því að nota óíslenskuleg bullorð. Sú niðurstaða getur reynst mikilvæg bæði í skimun og greiningu. Í niðurstöðum rannsóknarinnar eru vísbendingar um að frásagnargeta barna með íslensku sem annað mál og greinda málþroskaröskun sé óþroskuð sem gerir þeim erfitt fyrir að koma efni frá sér á merkingarbæran hátt í töluðu máli. Frásagnargeta barna með íslensku sem annað mál og dæmigerðan málþroska er í flestum tilfellum lengra á veg komin og þeim gengur betur að skipuleggja og orða hugsun sína. Meðallengd segða í frásögnum er styttri og orðaforði minni hjá börnum með íslensku sem annað mál og greinda málþroskaröskun heldur en hjá börnum með íslensku sem annað mál og dæmigerðan málþroska.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028481390
Cites: 74
Cited by: 2
Related to: 10