Work

Hafa laun forstjóra hækkað meira en laun annarra starfsmanna í íslenskum fyrirtækjum árin 1999 til 2018? Áhrif stjórnunarvalds á launahlutfall forstjóra

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn á launahlutfalli forstjóra og annarra starfsmanna árin 1999 til 2018 byggir á ítarlegu gagnasafni sem nær til starfsmanna og fyrirtækja á Íslandi (með 50 starfsmenn eða fleiri) og teljast til almenns vinnumarkaðar. Niðurstöður gefa til kynna að laun forstjóra í íslenskum fyrirtækjum hafi hækkað umfram laun annarra starfsmanna á tímabilinu 2002 til 2007 en lækkað árin 2008 og 2009. Síðan þá hefur launahlutfall forstjóra og annarra starfsmanna verið svipað. Ef hins vegar er horft til forstjóra í stórum fyrirtækjum (með 250 starfsmenn eða fleiri) hafa laun þeirra hækkað meira en annarra starfsmanna yfir tímabilið, þrátt fyrir lækkun á hlutfallinu árin 2008 og 2009. Sama gildir um laun forstjóra í fyrirtækjum skráð á markað. Launahlutfall forstjóra í meðalstórum fyrirtækjum (50 til 249 starfsmenn) hefur aftur á móti haldist nokkuð stöðugt yfir allt tímabil rannsóknar. Á árunum 2016 til 2018 var launahlutfall forstjóra og annarra starfsmanna í íslenskum fyrirtækjum rúmlega 4 sem gefur til kynna að forstjórar hafi verið með rúmlega 4 sinnum hærri laun en aðrir starfsmenn. Sambærilegt launahlutfall forstjóra í stórum fyrirtækjum var rúmlega 6 og í fyrirtækjum á markaði var launahlutfallið rúmlega 8. Í alþjóðlegu samhengi er launahlutfall forstjóra mun lægra á Íslandi en í öðrum löndum sem helst í hendur við niðurstöður rannsókna um hvað hefur áhrif á hlutfallið. Niðurstöður greininga á launahlutfalli forstjóra yfir tímabilið 2014 til 2018 gefa ekki til kynna að launahlutfall forstjóra sé hærra því meira vald sem forstjóri hefur. Af fjórum þáttum sem mældu vald og innihéldu meðal annars mælingar á stjórnarháttum fyrirtækja, hafði einungis starfsreynsla forstjóra lítil en marktæk áhrif á launahlutfall forstjóra. Lagt er til að þróaðar verði nýjar mælingar á valdi á sviði tengslamyndunar. Þessi rannsókn hefur þann kost að hún byggir á yfirgripsmiklum gögnum og nær til stærri hluta fyrirtækja en almennt tíðkast í rannsóknum á launum forstjóra.
Source: Skemman
Author: Margrét Kristín Indriðadóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028543266
Cites: 115
Cited by: 1
Related to: 10