Work

Frammistöðustjórnun. Innleiðing á frammistöðumati hjá ÁTVR

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Viðfangsefni ritgerðarinnar var að skoða upplifun verslunarstjóra á því hver sé tilgangur frammistöðusamtala hjá Vínbúðunum á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtæki leggja mikið fjármagn í að innleiða og þjálfa starfsmenn í að framkvæma frammistöðusamtöl og því er mikilvægt að unnið sé rétt að þeim. Ef frammistöðumat er notað getur það aðstoðað stjórnendur fyrirtækis við að fylgjast með frammistöðu starfsmanna. Frammistöðusamtöl eru góður vettvangur til þess að yfirmaður og undirmaður geti mæst á jafningjagrundvelli og rætt saman um frammistöðuna. Þar skapast umhverfi þar sem hægt er að ræða um hvað er gert vel og hvað megi gera betur. \nFramkvæmd var megindleg og eigindleg rannsókn. Spurningalisti var lagður fyrir alla fastráðna starfsmenn, ásamt því að fimm viðtöl voru tekin við verslunarstjóra í Vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að flestir starfsmenn hafi farið í frammistöðusamtal og að upplifun þeirra á samtalinu hafi verið góð. Verslunarstjórarnir telja þetta vera gott verkfæri til þess að skoða frammistöðu starfsmanna, ásamt því að hægt sé að vinna í því að bæta hæfni starfsmannsins. Höfundur dregur þá ályktun að góð þekking á notkun kerfisins skipti miklu máli ásamt því að geta veitt undirmönnum viðeigandi endurgjöf. Mikilvægt er fyrir mannauðsdeild ÁTVR að bjóða upp á viðeigandi þjálfun í framkvæmd frammistöðusamtals, bæði fyrir stjórnendur og almenna starfsmenn.
Source: Skemman
Author: Ríkey Jóna Eiríksdóttir 1986
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028611929
Cites: 26
Cited by: 2
Related to: 10