Heildræn nálgun í líknarmeðferð : sálfræðimeðferð og sálgæsla deyjandi einstaklinga
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Dauðinn getur reynst ógnvænlegt fyrirbæri sem er oft erfitt að takast á við. Dauðaferlið hefur gjarnan í för með sér sárar og flóknar tilfinningar og upplifanir. Rannsóknir á áhrifum sálfræðimeðferða á líðan deyjandi einstaklinga hafa leitt af sér ýmsar meðferðanálganir sem virðast líklegar til árangurs. Einnig er að finna fjölda rannsókna sem leggja áherslu á mikilvægi tilvistarlegra og trúarlegra þátta í líðan fólks sem tekst á við lífsógnandi sjúkdóma. Hver einstaklingur nálgast dauðann á sinn eigin persónulega hátt og því getur reynst erfitt að þróa meðferðir sem mæta þörfum hvers og eins. Það er mikilvægt að sjúklingar hafi aðgang að fagaðilum sem hafa menntun og reynslu til að sinna þessum ólíku þörfum. Því er nauðsynlegt að á sjúkrahúsum og líknardeildum sé hægt að kalla til sálfræðinga og presta þegar þörf er á. Markmið ritgerðarinnar var að varpa ljósi á þær ólíku tilfinningar og upplifanir sem deyjandi einstaklingar gætu þurft að takast á við. Auk þess var fjallað um hvaða hlutverk sálfræðingar og prestar geta spilað í líknarmeðferðinni, bæði gagnvart hinum deyjandi og aðstandendum. Farið var yfir uppbyggingu og áhrif ólíkra meðferðarnálgana sem gætu hjálpað meðferðaraðilum að finna úrræði til að bæta líðan sjúklinga. Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi heildrænnar nálgunar í umönnun deyjandi einstaklinga. \nLykilorð: líknarmeðferð, deyjandi einstaklingar, sálfræðimeðferð, sálgæsla
Source: Skemman
Author: Hjördís Perla Rafnsdóttir 1986
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028646440
