Work

Fæðuval brandugla (Asio flammeus) í mismunandi vistlendum

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Brandugla er útbreidd uglutegund sem lítið hefur verið rannsökuð á Íslandi til þessa, en hér hefur hún orpið síðan um 1930. Þar sem hún byggir afkomu sína að uppistöðu til á stúfmúsum erlendis er ráðgáta hver meginbráð hennar sé á Íslandi. Með GPS-merkingum og greiningum á ælubögglum á fimm mismunandi branduglum voru fæðuvenjur þeirra skoðaðar í mismunandi vistlendum. Eins og búizt var við samanstóð megnið af fæðunni af hagamús (Apodemus sylvaticus), og stærsti hluti annarrar fæðu af smáfuglum. Það sem eftir stóð utan fugla og hagamúsa voru mýs sem ekki var hægt að greina örugglega til tegunda, ásamt einni húsamús (Mus musculus). Greinilegur marktækur munur var á fæðuvali einstaklinga og fæðuvali milli vistlenda. Þrír einstaklingar voru músaveiðarar, en tveir voru fuglaveiðarar. Hæsta hlutfall af músum var veitt í graslendi, moslendi, votlendi og í skriðum og klettum, en lægsta hlutfallið var veitt í melum & sandlendi, skóglendi, hraunlendi og strandlendi. Þótt marktækur munur væri á hlutföllunum milli mismunandi vistlenda var hann ekki mikill, og vert væri að endurtaka tilrauninna með stærra úrtaki, ásamt því að athuga hvaða breytur orsaki muninn milli einstaklinga, sbr. þyngd, aldur, kyn, stærð, o.s.frv.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Ecology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028652256
Cites: 16
Cited by: 1
Related to: 10