Work

Fæðingarþunglyndi og áhrif á þroska og líðan barns

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Meðganga er tímabil þar sem konur eru mjög berskjaldaðar, líkamlega, sálfræðilega og tilfinningalega. Fyrri reynsla getur haft áhrif á andlega líðan móður á þessu viðkvæma tímabili. Andleg vanlíðan er algeng eftir fæðingu og getur undið upp á sig og þróast yfir í fæðingarþunglyndi. Það er algengara en margan grunar og talið er að 10-15% kvenna upplifi fæðingarþunglyndi. Ef um alvarlegt fæðingarþunglyndi er að ræða getur það haft neikvæð áhrif á tengslamyndun milli móður og barns og margvísleg áhrif á þroska og líðan barns. \n\tTilgangurinn með þessari fræðilegu samantekt var að afla þekkingar um áhrif fæðingarþunglyndis á þroska og líðan barns. Leitast var við að skoða áhrif andlegrar vanlíðanar á meðgöngu á fóstur. Tekið var mið af áhættuþáttum andlegrar vanlíðanar á meðgöngu og þau einkenni sem hjúkrunarfræðingar og ljósmæður þurfa að vera vakandi fyrir í mæðravernd. Hlutverk hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra voru einnig skoðuð til fyrirbyggingar á mögulegu tengslarofi sem getur orðið í kjölfar fæðingarþunglyndis. Heimilda var aflað í gagnasöfnunum PubMed, Science Direct, Google Scholar og Cinahl ásamt fræðibókum sem voru fengnar af veraldarvefnum, á Landsbókasafni og Miðstöð foreldra og barna. \n\tHelstu niðurstöður sýndu að áhrif andlegrar vanlíðanar á meðgöngu geti haft áhrif á fóstrið, meðal annars hefur kvíði á meðgöngu verið tengdur við fyrirburafæðingar og lága fæðingarþyngd. Þar að auki er talið að andleg vanlíðan á meðgöngu hafi áhrif á tilfinninga- og hegðunarvandamál barna í 10-15% tilvika. Áhrif fæðingarþunglyndis vegur þungt þegar kemur að þroska og líðan barns. Börn þunglyndra mæðra glímdu mörg við hegðunarvandamál, seinkun á vitsmunaþroska, skerta samskiptahæfni og kvíða á skólaaldri. Þau áttu það öll sameiginlegt að hafa myndað óörugg tengsl sem ungbörn. Einnig er aukin hætta á þróun geðrænna vandamála á unglings- og fullorðinsárum. Vegna þessara afleiðinga á þroska og líðan barns hefur verið byggð upp þjónusta sem snýr að þörfum þessara foreldra og barna. Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður gegna því lykilhlutverki að koma auga á einkenni andlegrar vanlíðanar á meðgöngu og eftir fæðingu. Mikil þörf er á að hjúkrunarfræðingar og ljósmæður sem sinna þessum hópi þekki þau úrræði sem standa til boða.
Source: Skemman
Authors: Dýrleif Sigurjónsdóttir 1992, Valdís Birta Arnarsdóttir 1993
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028716212
Cites: 34
Cited by:
Related to: 10