Work

Heildræn nálgun : hjúkrunarfræðingar í heilsugæslu og þjónusta þeirra við skjólstæðinga með sykursýki af gerð tvö

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Sykursýki af tegund tvö (SS2) er vaxandi heilbrigðisvandi um allan heim og reiknað er með að fjöldi þeirra sem greinast með sjúkdóminn muni tvöfaldast á næstu 25 árum. Meðferð við sjúkdómnum hefur þróast mikið undanfarin ár, m.a. með aukinni þátttöku hjúkrunarfræðinga. Tilgangur rannsóknarinnar var að auka þekkingu og efla þjónustu hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu við skjólstæðinga með SS2. Rannsóknarspurningin var: Hvernig mæta hjúkrunarfræðingar í heilsugæslu skjólstæðingum sínum með sykursýki af gerð tvö með tilliti til hæfni þeirra til sjálfsumönnunar og lífsstílsbreytinga? Til að leita svara við rannsóknarspurningunni var valin eigindleg innihaldsgreining. Viðtöl voru tekin við 18 hjúkrunarfræðinga í fjórum rýnihópum, tveimur úr heimahjúkrun og tveimur úr sykursýkismóttökum. Lykilþema rannsóknarinnar, „Heildræn nálgun“ er lýsandi fyrir viðhorf þátttakenda sem voru sammála um að þjónustan þurfi að vera einstaklingsmiðuð og styðjandi með góðri eftirfylgd. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar er að finna í þremur þemum; einstaklingsmiðuð þjónusta, skjólstæðingur og hjúkrunarfræðingur og snúa þau að einstaklingsmiðaðri nálgun þjónustunnar, verklagi hjúkrunarfræðinga ásamt samskiptum þeirra og viðhorfum til annarra fagaðila og stofnana og að lokum þá þætti sem snúa beint að skjólstæðingunum sjálfum, sjálfsumönnun, sjálfsumhyggju og sjálfsábyrgð. \nÚt frá niðurstöðunum má álykta að þrátt fyrir að þjónusta hjúkrunarstýrðra sykursýkismóttaka og heimahjúkrunar í heilsugæslu sé víða í góðum farvegi megi gera enn betur, m.a. með því að huga betur að andlegri líðan skjólstæðinga ásamt því að efla áhugahvetjandi samtalsmeðferð og þverfaglega teymisvinnu. Leggja má aukna áherslu á árangursmat þjónustu,verklagsleiðbeiningar og notkun matskvarða í nálgun hjúkrunarfræðinga í þjónustu við skjólstæðinga með SS2. Einnig má álykta að bæta þurfi samvinnu heimahjúkrunar og annarra fagaðila innan heilsugæslu. Lykilhugtök: Sykursýki af gerð tvö, heilsugæsla, hjúkrunarstýrð sykursýkismóttaka, heimahjúkrun, sjálfsumönnun og áhugahvetjandi samtalsmeðferð.
Source: Skemman
Author: Þorgerður Einarsdóttir 1971
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028747607
Cites: 46
Cited by:
Related to: 10