Fyllum skólana af hamingjusömum kennurum : upplifun grunnskólakennara af eigin velfarnaði út frá PERMA
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Til að nemendum líði vel og gangi vel í námi er mikilvægt að kennarar þeirra upplifi velfarnað í sínu daglega lífi og starfi. PERMA-velfarnaðarkenning Seligmans (2011) var notuð sem rammi utan um eigindlega rannsókn á velfarnaði íslenskra grunnskólakennara, en kenningin skilgreinir fimm þætti sem nauðsynlegir eru til að upplifa velfarnað en það eru; jákvæðar tilfinningar, áhugi og innlifun, félagsleg tengsl, tilgangur og árangur. Spurningarammi var unnin út frá PERMA-profiler (Butler og Kern, 2016). Markmiðið með rannsókninni var að skoða á dýptina mismunandi þætti velfarnaðar til að sjá hversu nothæf PERMA-velfarnaðar¬kenningin er þegar kemur að daglegu lífi grunnskólakennara. Tekin voru hálfopin viðtöl við átta starfandi grunnskólakennara sem upplifa sig hamingjusama í starfi og einkalífi. Gögnin voru þemagreind bæði með afleiðslu, þar sem svör þátttakenda voru mátuð við PERMA þættina, og aðleiðslu, þar sem leitað var eftir öðrum sameiginlegum þemum. Allir PERMA-þættirnir komu fram hjá kennurunum en í mismiklum mæli. Jákvæðar tilfinningar komu sterkast fram og eru sá þáttur sem hefur gagnvirkni við alla hina þættina. Félagsleg tengsl og tilgangur komu líka sterkt fram ásamt nauðsyn þess að upplifa árangur í starfi. Önnur þemu utan PERMA sem fram komu voru sjálfsþekking og lífsorka og voru þau nokkuð áberandi. Niðurstaðan er sú að PERMA nái ekki alveg að ramma inn velfarnað kennara því erfitt er að sjá að kennarar geti verið án þáttanna tveggja sem eru utan við PERMA og samt upplifað velfarnað sinn góðan. Engu að síður gefur PERMA góðan kenningaramma til að varpa ljósi á ólíka þætti velfarnaðar sem vert er að nýta til hagsbóta fyrir kennara, nemendur og samfélagið í heild.
Source: Skemman
Author: Guðbjörg Pálsdóttir 1966-
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: PERMA model, well-being, primary school teachers, teacher well-being, positive psychology, positive emotions, meaning, engagement, relationships, achievement, teacher well-being interventions, teacher burnout, teacher stress, teacher self-care, teacher professional development, teacher self-efficacy, teacher motivation
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028769967
