Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Meginmarkmið þessa verkefnis var að setja saman kennsluefni með æfingum til að stunda í vatni og gera það aðgengilegt á opinni vefsíðu. Æfingarnar eru ætlaðar öllum, en þó með áherslu á aldraða. Þéttleiki vatns veitir mótstöðu við hreyfingu og flotmáttur þess dregur úr áhrifum þyngdarafls á liði. Hreyfing í vatni er því talin henta vel öldruðum sem hafa skertan vöðvakraft og auma liði. Skoðaðar voru rannsóknir á hreyfingu í vatni. Sett var upp æfingaáætlun með myndum og útskýringum á framkvæmd. Æfingarnar sem urðu fyrir valinu hafa verið notaðar með góðum árangri í rannsóknum, með það í huga að auka styrk og þol iðkenda á 8-12 vikna tímabili. Æfingarnar og áætlanirnar eru nú aðgengilegar á heimasíðunni holltherognu.is. Einnig er þar að finna fróðleik um ávinning þess að stunda reglubundna hreyfingu í vatni.
Source: Skemman
Author: Ólöf Björnsdóttir
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028946544
