Work

Gæðaúttekt á Íþróttaskóla HSV : hvað er gott og hvað má bæta?

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Fjölbreytt íþróttaiðkun þar sem áhersla er lögð á þjálfun í gegnum skipulagðan leik er talin hafa margvíslegan ávinning í för með sér fyrir börn. Hún er talin geta aukið áhuga þeirra á íþróttum, minnkað líkur á brottfalli úr þeim og stuðlað að áframhaldandi hreyfingu fram á fullorðinsár. Til þess að íþróttastarfið skili tilætluðum árangri þarf að skipuleggja það vel, setja skýr markmið sem taka mið af aldri og þroska barnanna og finna árangursríkar leiðir sem fara á til að ná þeim markmiðum. Markmið þessa rannsóknarverkefnis var að gera gæðaúttekt á Íþróttaskóla Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) á Ísafirði, sem beitir sér meðal annars fyrir jákvæðum fyrstu kynnum 6-10 ára barna af fjölbreyttri íþróttaiðkun. Notast var við blandaðar rannsóknaraðferðir þar sem sendir voru út spurningalistar til foreldra sem áttu eða höfðu átt barn/börn í íþróttaskólanum, þjálfara íþróttaskólans og formenn og þjálfara íþróttafélaga á Ísafirði. Einnig voru tekin viðtöl við yfirþjálfara íþróttaskólans og formann þróttafélags á staðnum. Niðurstöður bentu til þess að margt væri gott í starfsemi íþróttaskólans, í því sambandi er hægt að nefna að stundaskrá hans fellur vel að starfi grunnskólanna á svæðinu og fjölbreytt úrval íþróttagreina er þar í boði fyrir börnin gegn vægu gjaldi. Einnig kom í ljós að einhverjir þættir í skipulagi og utanumhaldi íþróttakennslunnar þarfnast úrbóta og þörf er á að móta ákveðna agastefnu í íþróttaskólanum.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028951394
Cites: 45
Cited by:
Related to: 10