Work

Heilsuefling fyrir einstaklinga með heilabilun : yfirlitssamantekt

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Heilabilun er yfirhugtak yfir ástand sem getur haft ólíkan uppruna og orsakir en einkennist af afturför á vitrænni getu og skertri færni. Spár gera ráð fyrir mikilli fjölgun þeirra sem greinast með heilabilun á næstu áratugum og því er vaxandi þörf á að styðja við einstaklinga með heilabilun til að aðlagast greiningunni og bæta heilsu þeirra og lífsgæði. Lögð hefur verið aukin áhersla á heilsueflingu til að stuðla að vellíðan og gera einstaklinginn betur í stakk búinn til takast á við sjúkdóminn og eiga innihaldsríkt líf þrátt fyrir heilabilun. \nTilgangur: Að dýpka skilning og samþætta þekkingu um heilsueflandi aðgerðir sem beinast að einstaklingum með heilabilun ásamt mögulegri gagnsemi slíkra aðgerða fyrir markhópinn. \nAðferð: Yfirlitssamantekt (e. scoping review). Framkvæmd var kerfisbundin leit í EBSCOhost, Web of Science, ProQuest og Scopus og miðað við síðustu 5 ár. Notast var leitarorðin dementia, health og health promotion við leitina og stuðst við fyrirfram ákveðin inntöku- og útilokunarskilyrði. Niðurstöðum leitar er lýst í PRISMA flæðiriti. \nNiðurstöður: Samtals stóðust 48 greinar inntökuskilyrði og voru niðurstöður flokkaðar niður í níu kafla eftir þeim ólíku sviðum sem heilsueflandi aðgerðir miðuðust að: heilsueflandi námskeið; hreyfing; næring; bjargráð; heilsulæsi og heilsuhegðun; andleg líðan; tækni og búnaður; svefn og að lokum heilsueflandi og heilabilunarvæn samfélög. Hvers konar fjölþætt inngrip, ýmist einstaklings-miðuð eða í hóp, með heildrænni og persónumiðaðri nálgun voru gagnlegust. Heilsueflandi aðgerðir ýttu undir heilbrigða hegðun og leiddu til bættra lífsgæða, aukinnar vellíðunar og betri aðlögunar að sjúkdómnum ásamt því að stuðla að betri sjálfsumönnun og ýta undir félagsleg samskipti. \nÁlyktun: Heilsueflandi aðgerðir sem eru miðaðar að einstaklingum með heilabilun eru gagnleg við að stuðla að bættri heilsu og auka við lífsgæði fólks. Mikilvægt er að huga að hvötum og hindrunum til heilsueflingar, bæði persónulegum og í umhverfinu. Aðgerðir ættu að vera einstaklings-hæfðar og byggðar á persónulegum markmiðum. \nLykilorð: Heilabilun, heilsa, heilsuefling, heilsueflandi aðgerðir, yfirlitssamantekt
Source: Skemman
Author: Hildur Ýr Hvanndal
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028981823
Cites: 114
Cited by:
Related to: 10