Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Ill meðferð á börnum er alheimsvandamál sem hefur alla tíð fylgt mannlífi og menningu. Þessi ritgerð er fræðileg úttekt á illri meðferð á börnum í margvíslegu samhengi. Eftirfarandi lykilhugtökum er gerð ítarleg skil: líkamlegt ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi, tilfinningaleg/sálræn ill meðferð og vanræksla. \nMarkmið þessarar fræðilegu úttektar er að leita svara við þremur spurningum. Hefur heildarmynd misbeitingar gagnvart börnum breyst frá nútíma til samtíma? Hvaða nýjar skilgreiningar á illri meðferð á börnum hafa komið fram? Endurspeglast breytingarnar í íslenskri löggjöf er varðar börn? \nEkkert einfalt svar er til við þessum spurningum. Almennt má þó segja að þessi fræðilega úttekt hafi leitt í ljós vaxandi margbreytileika illrar meðferðar á börnum. Fjölmargar nýjar skilgreiningar á illri meðferð hafa komið fram undanfarna áratugi. Eins og til dæmis: ofbeldi milli jafningja, börn sem verða vitni að ofbeldi, skipulögð misnotkun barna, ill meðferð barna á stofnunum og helgisiðaofbeldi. Það er mismunandi hvernig þessar nýju skilgreiningar endurspeglast í íslenskri löggjöf er varðar börn. \n \nLykilorð: Ill meðferð á börnum, ofbeldi milli jafningja, börn sem verða vitni að ofbeldi, skipulögð misnotkun barna, ill meðferð barna á stofnunum, helgisiðaofbeldi.
Source: Skemman
Author: Þorleifur Kristinn Níelsson 1978
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028990573
