Work

Helstu áskoranir og markmið nýútskrifaðra íþróttakennara

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Markmið og tilgangur: Markmið þessa verkefnis er að skyggnast betur inn í hugarheim íþróttakennara sem koma nýir inn á vinnustað og fá þeirra álit og skoðanir á hinum ýmsu starfstengdu þáttum. Tilgangurinn er einnig sá að komandi kynslóðir íþróttakennara geti lesið sér til um upplifanir annarra. Rannsóknarsnið og aðferð: Um er að ræða eigindlega rannsókn þar sem gögnum var safnað með viðtölum. Þátttakendur voru fjórir íþróttakennarar í grunnskóla með styttri starfsferil en fimm ár. Spurningalisti var hannaður út frá efni í fræðilegum inngangi verkefnisins og rannsóknarspurningu. Nafnleyndar er gætt og viðtöl voru tekin upp á hljóðformi. Niðurstöður: Upplifun og reynsla nýrra íþróttakennara af því að koma nýir inn í starf er almennt góð. Það var þó margt sem kom á óvart meðal annars hversu erfitt og yfirgripsmikið starfið getur verið. Góð tengsl við samstarfsfólk eru mikilvæg ásamt því að fá sjálfstæði til að prófa sig áfram með nýjar hugmyndir og taka ábyrgð frá upphafi. Ályktanir: Út frá niðurstöðum má álykta að það sé heilmikil áskorun að koma inn sem nýr íþróttakennari á vinnustað. Starfið geti talist mjög erfitt og það taki tíma að aðlaga sig. Það komi á óvart hversu mörg verkefni fylgi starfinu og stuðningur samstarfsfólks geti skipt sköpum.
Source: Skemman
Author: Hafþór Aron Ragnarsson
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7028995055
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10