Hugverkaréttur á krossgötum. Samspil höfunda- og einkaleyfaverndar við tækniframfarir á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: „Við erum stödd við upphaf byltingar sem mun gjörbreyta því hvernig við lifum, störfum og eigum samskipti okkar á milli.“ Með þessum orðum lýsir Klaus Schwab, hagfræðingur og stofnandi Alþjóða efnahagsstofnunarinnar (e. The World Economic Forum), fjórðu iðnbyltingunni í upphafsorðum samnefndrar bókar sinnar, í lauslegri þýðingu. Schwab notaði hugtakið fyrstur svo skráð sé árið 2016 og síðan hefur það orðið nokkurs konar samnefnari fyrir þær tækniframfarir sem staðið hafa yfir undanfarin ár. Smíða mætti fjölmörg rit um þau samfélagslegu álitaefni sem vakna samhliða innreið nýrrar tækni, en í þessu riti er höfuðáhersla lögð á hin lagalegu álitaefni. Í því samhengi verður sérstaklega litið til hugverkaréttar og hvernig tvö undirsvið hans, þ.e. höfundaréttur og einkaleyfaréttur, ríma við yfirstandandi og væntanlegar framfarir. \n \nFyrst verður stiklað á stóru um hina margumræddu fjórðu iðnbyltingu og litið til helstu hugtaka sem snúa að innreið gervigreindar, vitvéla og fleiri undirliggjandi þátta. Þá verða rakin ýmis álitaefni sem vakna, á borð við réttindi og skyldur til handa vélum, tækifæri og áskoranir fyrir löggjafa og samfélag samhliða nýrri tækni o.fl. Að því búnu verður farið yfir á svið höfundaréttar, kafað í hverjir geta talist höfundar í skilningi laga og litið til nýjunga á borð við vitvélar sem skapað geta lög, ljóð og listaverk með lítilli sem engri aðkomu mannfólks og hvernig verk þeirra passa inn í ramma höfundalöggjafar. Hvort þau geti yfir höfuð notið verndar í skilningi laga eða séu dæmd til að teljast almenningseign, öllum frjáls til afnota. Enn fremur verður kafað í þá spurningu hver, ef einhver, geti talist höfundur verks sem skapað er af vitvél. Loks verður litið til höfundaréttarbrota á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar, hvort sköpunarverk vitvéla geti brotið á rétti annarra, hver ber ábyrgð á slíkum brotum og hvernig almennt er unnið að því að stemma stigu við slíkum brotum í stafrænu umhverfi. \n \nÁ sviði einkaleyfalöggjafar verður m.a. sérstaklega litið til fyrirbæra á sviði læknavísinda, þar sem einkaleyfi hafa umtalsvert vægi og hvað mestir möguleikar eru til að stuðla að jákvæðum samfélagsbreytingum. Þannig verður kannað hvort þær uppfinningar sem bjóða upp á hvað mesta möguleika á sviðinu, þ.e. algóriþmar fyrir persónusniðnar lækningar og þau gen, líftæknirannsóknir og gögn sem þar búa að baki rími inn í ramma einkaleyfakerfisins í núverandi mynd. Loks verður rýnt í þá stöðu sem skapast frá sjónarhóli einkaleyfakerfisins þegar vitvélar, sem sjálfar eru uppfinningar annarra, verða jafnframt hluti af því að skapa nýja uppfinningar. \nAð öllu þessu loknu verður staðan svo skoðuð í heild sinni og réttarstaðan dregin saman eftir föngum. Við framangreint verður farið um víðan völl, en eðli umfjöllunarefnisins veldur því að fastmótaðri réttarframkvæmd er almennt ekki til að dreifa, hvað síst í litlum samfélögum á borð við Norðurlöndin og Ísland sérstaklega. Verður því að miklu leyti stuðst við erlendan rétt, ákvæði laga og alþjóðasáttmála, dómaframkvæmd Evrópudómstólsins og hæstaréttar Bandaríkjanna, sem og túlkun regluverks Evrópusambandsins (ESB) svo eitthvað sé nefnt. Verður upp að einhverju marki farið inn á völl samanburðarlögfræði í þessuu samhengi og réttarstaðan borin saman milli ríkja sem styðjast við meginlandsrétt (e. civil law) annars vegar og fordæmisrétt (e. common law) hins vegar. Álitaefnin verða svo dregin saman eftir föngum og heimfærð til íslensks réttar með hliðsjón af þeim heimildum og vísbendingum sem til staðar eru.
Source: Skemman
Author: Hersir Aron Ólafsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Law
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029029058
