Work

„Hvenær er maður eiginlega orðinn Íslendingur?“ Um fordóma sem íslenskar konur sem eiga ættir að rekja til Mið-Austurlanda mæta á Íslandi

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er byggð á rannsókn sem gerð var á upplifun íslenskra kvenna, sem eiga ættir að rekja til Mið-Austurlanda, af fordómum á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar er að varpa ljósi á fordóma í íslensku samfélagi og sýna tengsl fordóma og þjóðernis við sjálfsmyndir. Rannsóknin byggist á einstaklingsviðtölum þar sem unnið var með þrjú þemu, þ.e. fordóma, sjálfsmyndir og hvað það er að vera Íslendingur. Viðtölin voru þau greind með hjálp greiningarforrits, þar sem grunduð kenning var notuð til að finna undirþemu sem hægt er að skipta upp í a) fáfræði og neikvæða forvitni, b) vonda menn og kúgaðar konur, c) uppgang öfgahópa, d) íslenskt mál og erlend nöfn og e) skörun sjálfsmyndar. Niðurstöður rannsókninnar sýna að fordómarnir birtast oft í íslamófóbískum staðalímyndum um múslimskar konur, en þær greindu frá því að upplifa fordóma og neikvæða forvitni yfir uppruna sínum, ásamt ótta um uppgang öfga hægriafla og efasemda um eigin sjálfsmynd. Þó sýndu niðurstöður einnig ákveðinn viðsnúning hjá konunum þegar þær urðu eldri, sem fóru í auknum mæli að fagna eigin fjölbreytileika og hætta að líta á hann sem ósamræmanlegan íslensku þjóðerni.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029063101
Cites: 100
Cited by:
Related to: 10