Work

Hvernig má auðvelda notkun heilasírits á gjörgæslu? Grunduð kenning byggð á sjónarhorni fagfólks

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Heilalínurit er viðurkennd aðferð til að fylgjast náið með heilastarfsemi alvarlega veikra einstaklinga á gjörgæslu. Með notkun heilalínurits er m.a. hægt að meta grunnrafvirkni í heila og raftruflanir, eins og síflog. Slíkar truflanir geta verið lífsógnandi eða valdið heilaskaða ef ómeðhöndlaðar. Með því að fylgjast með heilastarfsemi meðvitundarlausra gjörgæslusjúklinga með langtíma upptökum á heilalínuriti, heilasíriti, má bæta útkomu þeirra. Heilasíritar eru í vaxandi mæli hluti af staðalbúnaði gjörgæsludeilda víða, sérstaklega á stærri háskólasjúkrahúsum. Á gjörgæsludeildum Landspítala er til heilasíritstæki, en notkunin er lítil. \nTilgangur: Að varpa ljósi á helstu áskoranir og hjálplega þætti sem fylgja því að nota heilasírit á gjörgæslu að mati fagfólks á gjörgæslu og taugalækningadeild Landspítala og finna leiðir til að efla notkun á heilasíriti með samstarfi ólíkra starfseininga. \nAðferðafræði: Aðferð grundaðrar kenningar þar sem skoðað var samspil á milli fagfólks sem notar heilasírit eða tekur ákvörðun um notkun þess og umhverfisins þar sem tækið er notað (táknræn samspilshyggja). Ferli í kringum ákvarðanatöku um notkun, var notað til að ná yfirgripsmikilli innsýn inn í notkun heilasirits á gjörgæslu og byggja upp líkan sem gefur yfirsýn yfir þætti sem þarf að taka tillit til. Notast var við tilgangs úrtak í byrjun og síðar fræðilegt úrtak. Gagnasöfnun samanstóð af rýnihópaviðtölum (n=3) við fagfólk með ólíkan bakgrunn (n=11), einstaklingsviðtölum (n=4), og formlegum vettvangsheimsóknum (n=5). Óformlegar vettvangsheimsóknir (n>100), auk fjölda óformlegra samtala (n>100) áttu sér líka af stað í aðstæðum þar sem heilasírit var til umræðu á gjörgæsludeild. Greining gagna fór fram með aðleiðslu og sífelldum samanburði. \nNiðurstöður: Sett var fram líkan sem getur hjálpað til við greina og skýra áskoranir og hjálplega þætti við notkun og innleiðingu heilasírits á gjörgæslu. Helstu fyrirsagnir í líkaninu eru: a) Lítið notað og framandi, samt dálítið töff b) Leiðir til að efla notkun og yfirstíga hindranir c) Í hinum fullkomna heimi. Þættir sem stóðu uppá í innleiðingu vörðuðu tímaskort, manneklu og þörf fyrir fræðslu hjá fagfólki. Einnig kom fram að starfsemi taugalækningadeildar og gjörgæslu er ólík og að nauðsynlegt sé að bæta verkferla til að efla skilvirka notkun heilasírits á gjörgæslu. Niðurstöður sýna berlega áhuga hjá fagfólki að nota heilasírit meira á gjörgæslu, sjúklingum til hagsbóta. \nÁlyktanir: Niðurstöður má nýta til að greina þætti sem hafa áhrif á farsæla innleiðingu heilasírits á gjörgæslu, þar sem m.a. er tekið tilliti til fræðsluþarfa starfsfólks og áskorana sem geta myndast í samstarfi mismunandi starfseininga. Þó að líkanið hafi verið þróað á litlum spítala má ætla að þættirnir sem greindust hafi notagildi víðar með þeim hætti að atriðin í líkaninu hafi mismunandi vægi á ólíkum stöðum. Niðurstöðurnar má nýta til að byggja upp markvissari og straumlínulagaðri notkun á heilasíriti á gjörgæslu sem hjálpar til við að greina og bregðast við ástandi sjúklings sem erfitt er að ná fram með öðrum leiðum.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029075810
Cites: 67
Cited by:
Related to: 10