Work

Hvað geta kennarar gert til að efla tvítyngd börn á elsta stigi leikskóla : árangursríkt leikskólastarf fyrir farsæld í komandi námi

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Leikskólastarf gegnir mikilvægu hlutverki í málörvun barna. Í þessari greinargerð verður farið yfir þá alvarlegu stöðu sem myndast hefur í samfélaginu okkar meðal tvítyngdra barna í leik- og grunnskóla. Það er ljóst að eitthvað þarf að fara betur. Rannsóknir sýna endurtekið fram á að þessi hópur barna er ekki að ná tökum á íslensku. Rannsóknir sýna einnig að börn sem standa höllum fæti í leikskóla ná sér almennt ekki á strik þegar þau byrja í grunnskóla. Starfsfólk leikskólanna þarf að gæta þess að öll börn taki þátt í daglegu starfi og að ekkert barn sé óvirkt vegna skilningsleysis á tungumálinu. Þegar börn hafa ekki skilning á tungumálinu eiga þau til að láta lítið fyrir sér fara og taka ekki þátt í þeim umræðum sem krefjast innihaldsríkra orða og gagnkvæmra samskipta. Meginmarkmið þessarar greinargerðar er að fá kennara til þess að verða meðvitaðri um stöðu tvítyngdra barna í leik- og grunnskólum og að kynna sér árangursríkar leiðir til að nýta sér þær í starfi.
Source: Skemman
Author: Ásdís Sigurðardóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029154673
Cites: 29
Cited by:
Related to: 10