Work

The impact of stress and warning on the creation of false memories

Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða áhrif streitu og viðvörunar á myndun falskra minninga sem og fjölda réttra orða sem eru endurheimt. Þátttakendur voru 60 talsins, 11 karlar og 49 konur og var skipt tilviljunarkennt í fjóra hópa; samanburðarhóp, hóp sem var varaður við myndun falskra minninga, hóp sem var settur í streituvaldandi aðstæður og að lokum hóp sem fékk viðvörun og var settur í streituvaldandi aðstæður. Niðurstöðurnar sýndu að tálorð (fölsk orð munuð) voru mynduð í 22% tilfella og réttu orðin voru munuð í 54% tilfella. Einnig sýndu niðurstöðurnar að þátttakendur voru jafn líklegir til þess að mynda falska minningu þrátt fyrir að vera varaðir við og að streita hafði ekki áhrif á myndun falskra minninga. Þeir þátttakendur sem fengu bæði viðvörun og voru settir í streituvaldandi aðstæður mundu fleiri tálorð heldur en aðrir en sá munur var ekki marktækur. Hins vegar, hafði viðvörun marktæk áhrif á fjölda réttra orða sem þátttakendur gátu endurheimt.
Source: Skemman
Author: Íris Ösp Ólafsdóttir 1989
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029214508
Cites: 11
Cited by:
Related to: 10