Work

The influence of Strategic Human Resource Management Maturity on downsizing harshness in public and private Icelandic organisations

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessa verkefnis var að skoða hvort þroskastig mannauðstjórnunar í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum hafi áhrif á hve hörðum samdráttaraðferðum þau beita. Einnig var skoðað hvort munur sé á milli opinbera og einkageirans. Mælitækið sem notað var til að skýra þroskastig mannauðsjórnunar byggir á hugmyndafræði Kearns frá 2003 og \nhugmyndafræði Einarsdóttur, Ólafsdóttur og Arnardóttur frá árinu 2016 var notuð sem sem skilgreining á samdráttaraðferðum eftir áhrifum þeirra á starfsfólk. Gögn voru fengin úr gagnasafni CRANET rannsóknarinnar frá árunum 2012 og 2015 og voru svör frá 195 fyrirtækjum og stofnunum notuð. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að einkageirinn er hærri í heildarþroskastigi, sem og í öllum undirflokkum, heldur en opinberi geirinn. Einnig eru þau fyrirtæki og stofnanir sem greinast á hærra í þroskastigi líklegri til að beita harðari samdráttaraðgerðum en þau sem eru að greinast lægri í þroska. \nAllir undirflokkar heildarþroskastigs spá fyrir um notkun harðari samdráttaraðgerða en heildarþroskastig og laun/hlunnindi hafa þar sterkustu sjálfstæðu áhrifin. Frá þessari rannsókn er hægt að draga þá ályktun að einkageirinn beiti harðari samdráttaraðgerðum en sá opinberi. Þar sem þessi rannsókn er sú fyrsta sem skoðar notkun samdráttaraðgerða \nút frá þroska mannauðstjórnunar kemur hún með nýtt kenningarlegt framlag til fræða á sviði samdráttaraðgerða og eins á sviði vinnusálfræði og mannauðstjórnunar
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029354619
Cites: 59
Cited by: 1
Related to: 10