Work

Jákvæð sálfræði í leikskólastarfi : samskipti kennara og nemenda

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Jákvæð sálfræði er frekar ný fræðigrein og hefur ekki mikið verið notuð innan skólakerfisins á Íslandi. Þær hugmyndir sem liggja hér að baki eru komnar frá Martin Seligman og Milhay Csikszentmihalyi um flæði og styrkleika. Í kringum síðustu aldamót fannst þeim vanta nýja sýn í fræðaheim sálfræðarinnar og voru orðnir hvimleiðir á að alltaf var verið að horfa á veikleika fólks heldur en að efla styrkleika þeirra. Flæðishugmyndir byggja á því að gefa nemendum eða einstaklingum verkefni sem þeir hafa áhuga á og er nógu krefjandi til þess að nemandi haldi einbeitingu þar til hann hefur lokið verkefninu. Lokaverkefnið er rannsóknarritgerð sem fjallar um jákvæða sálfræði í leikskólastarfi. Hér á landi starfa tveir leikskólar eftir hugmyndum um jákvæða sálfræði og flæði. Tekin voru viðtöl við leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra þeirra leikskóla og skoðað hvernig jákvæð sálfræði, flæði og samskipti fléttast saman inn í leikskólastarfið ásamt því að skoða skjöl frá leikskólunum, starfsáætlanir og námskrár.
Source: Skemman
Author: Sveinbjörg Karlsdóttir 1988
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029417974
Cites: 7
Cited by:
Related to: 10