Work

Íslenski atferlislistinn: Þáttabygging í úrtaki 6 til 13 ára

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Hegðunar- og tilfinningavandi í barnæsku getur komið niður á lífi einstaklingsins á margvíslegan hátt. Börn geta farið á mis við grunnmenntun ásamt því að geta átt í ýmis konar félagslegum vandræðum. Mótþróa- og þrjóskuröskun er tiltölulega algengur hegðunarvandi sem einkennist af óhlýðni, þrætugirni og ýgi. Á Íslandi hafa einkennalistar verið notaðir við skimun og mat á geðrænum vanda, þeir eru að jafnaði neikvætt orðaðir og leita eftir frávikshegðun. Nú er í þróun nýtt mælitæki með jákvætt orðuðum atriðum sem meta eðlilega hegðun þar sem frávik koma fram sem öfgagildi á samfelldum kvarða. Með þessu er reynt að koma í veg fyrir skekkju sem hefur gjarnan háð atferlislistum. Í þessari rannsókn er mælitækið, sem er 72 atriða listi, þáttagreint og borið saman við þáttabyggingu eldra mælitækis (SDQ) ásamt greiningaviðmiðum DSM-4 á mótþróa-, þrjósku- og hegðunarröskun til að auka á réttmæti þess og skýra þáttabygginguna. Þátttakendur voru 335 mæður barna á aldrinum sex til 13 ára. Listinn barst foreldrunum rafrænt gegnum Mentor kerfi grunnskólanna. Niðurstöðurnar sýna að þrír skýrir þættir koma fram á listanum (áreiðanleiki á bilinu 0,87 til 0,97) ásamt einum sem ekki stóðst kröfur um áreiðanleika (α=0,44). Allir tengjast þeir tilfinninga-, félags- og siðferðisþroska. Þættir listans sýndu nokkra fylgni við sambærilega þætti SDQ. Niðurstöður renna því stoðum undir þá hugmynd að hægt sé að meta hegðunar- og tilfinningaraskanir sem öfgagildi á samfelldum kvarða með spurningalistum sem leita eftir eðlilegri hegðun.
Source: Skemman
Author: Ingi Páll Eiríksson 1988
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029431780
Cites: 15
Cited by: 2
Related to: 10