Work

Jákvæð inngrip á vinnustað. Vellíðan í lífi og starfi. Áhrif fyrirlestra um jákvæða sálfræði á vellíðan.

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Hamingja og vellíðan fólks er stór þáttur bæði í einkalífi og starfi. Eitt af því sem getur aukið vellíðan fólks eru jákvæð inngrip sem eru margvíslegar aðferðir er miða að því að bera kennsl á, þróa og víkka mannlega styrkleika og styrkleika hópa og skipulagsheilda. \nMarkmið þessarar rannsóknar var að skoða möguleg áhrif jákvæðra inngripa á vinnustað á vellíðan fólks. Haldin var fyrirlestrarröð með fræðslu um jákvæða sálfræði og kynntar ýmsar aðferðir sem gætu haft áhrif á vellíðan starfsmanna í lífi og starfi ef þeir myndu tileinka sér eitthvað af þeim. Settar eru fram tvær tilgátur: Fræðsla um aðferðir jákvæðra sálfræði eykur vellíðan starfsmanna og fræðsla um aðferðir jákvæðra sálfræði eykur vellíðan starfsmanna meira en hjá samanburðarhópi sem ekki hlýtur fræðslu. \nFarið er yfir fræðilega umfjöllun um jákvæða sálfræði, jákvæða forystu, jákvæðar skipulagsheildir og jákvæð inngrip á vinnustað. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og spurningalisti til að mæla vellíðan og hamingju var lagður fyrir starfsmenn Íslandsbanka sem sátu fyrirlestraröð um jákvæða sálfræði í apríl 2018. Spurningarlistinn var lagður fyrir í upphafi fyrirlestrarraðarinnar og svo aftur í lokin. Þátttakendur fundu síðan aðila í samanburðarhóp. Áreiðanleiki mælitækisins var 0,96 alpha. \nHelstu niðurstöður voru þær að vellíðan þeirra starfsmenna sem sátu fyrirlestraröðina jókst en líðan samanburðarhópsins stóð í stað. Einnig mældist vellíðan þeirri sem sátu fyrirlestrana hærri en samanburðarhópsins. Niðurstöður benda til að jákvæð inngrip á vinnustöðum geti bætt líðan starfsfólks. Þannig stóðust báðar tilgáturnar sem voru settar fram. Niðurstöður benda til að jákvæð inngrip á vinnustað geti haft góð áhrif á starfsmenn, hópa og skipulagsheildir.
Source: Skemman
Author: Ingibjörg Birna Ólafsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029443346
Cites: 115
Cited by:
Related to: 10