„Leið tómt á eftir, maður var að leita að einhverju“ : rannsókn á reynslu íslenskra unglingsstúlkna af því að byrja að stunda kynlíf í samhengi við stöðu kynjanna í samfélaginu almennt
Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Í alþjóðlegum rannsóknum sem gerðar hafa verið á heilsu og lífskjörum skólanema hefur kynlífshegðun verið einn af þeim þáttum sem skoðaðir hafa verið. Í þessum rannsóknum hefur komið fram að íslenskar unglingsstúlkur byrja fyrr að stunda kynlíf en jafnöldrur þeirra í öðrum löndum, að undanskildum grænlenskum stúlkum. Í þessari rannsókn er kynlífshegðun íslenskra unglingsstúlkna skoðuð með upplifun kvenna af sínum fyrstu skrefum í kynlífi að leiðarljósi. Niðurstöður þeirrar upplifunar eru skoðaðar í samhengi við jafnrétti kynjanna og hvernig hún birtist í samanburði við stöðu kvenna í samfélaginu almennt. Notast er við eigindlegar rannsóknaraðferðir og byggist rannsóknin á níu viðtölum við konur í tveimur aldurshópum þ.e. ungum konum sem nýlega hafa stigið upp úr unglingsárunum og eldri konum sem líta lengra til baka að unglingsárunum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að íslenskar unglingstúlkur finna fyrir einhvers konar þrýstingi á að hefja kynlíf. Eldri konurnar sjá glöggt þegar þær líta til baka að þær hafi byrjað að stunda kynlíf áður en þær höfðu þroska eða voru tilbúnar til. Yngri viðmælendurnir upplifa ekki á sama hátt að þær hafi ekki verið tilbúnar en þó ber á ákveðnum samfélagslegum þrýstingi í svörum þeirra. Áhyggjur af klámvæðingu eru sameiginlegar með báðum aldurshópum og hefur klámið neikvæð áhrif á yngri hópinn en þær upplifa að klámáhorf stráka hafi áhrif á kröfur þeirra til stelpna bæði hvað varðar útlit og atferli. Það er almenn skoðun viðmælenda rannsóknarinnar að fræðslu um kynlíf sé mjög ábótavant bæði í skólum og á heimilum. Hún þyrfti að fara fram áður en unglingar byrja að prófa sig áfram í kynlífi og ætti umræðan að vera opnari. Í rannsókninni kemur fram að þegar kemur að kynlífi eru kröfur og viðhorf til kynjanna á margan hátt ólík og bendir það til þess að jafnræði er ekki á með kynjunum á því sviði frekar en mörgum öðrum.
Source: Skemman
Authors: Ásta Arnbjörg Pétursdóttir, Elvý Guðríður Hreinsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029520759
