Kennsla nemenda með annað móðurmál en íslensku : rýnt í aðferðir og áherslur grunnskólakennara á yngsta stigi
Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsóknir sýna að nemendur með annað móðurmál en íslensku taka litlum framförum í íslensku milli ára, í leik- og grunnskóla. Það er í fjórða bekk grunnskólans sem námið byrjar að þyngjast og þá fer að reyna verulega á góða íslenskufærni. Rannsóknin hafði það meginmarkmið að fá innsýn í áherslur, reynslu og viðhorf kennara á yngsta stigi grunnskóla sem kenna nemendum sem eiga annað móðurmál en íslensku og hvernig þeir telja sig undirbúna til að sinna þessum nemendahóp. Rafrænn spurningalisti var sendur á umsjónarkennara og sérkennara sem störfuðu í 10 grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Spurningalistinn var sendur á 123 netföng en alls bárust 46 svör og var því svarhlutfall 37%. Helstu niðurstöður voru þær að 38,6% þátttakenda töldu sig ná að koma vel eða mjög vel til móts við námslegar þarfir ísl2 nemenda og 31,8% töldu sig ná því hvorki vel né illa. Helstu hindranir hinna voru tímaskortur, lítið námsefni og lítið um stuðning inni í bekk. Einungis 6,8% þátttakenda töldu námið hafa undirbúið þá frekar vel undir kennslu þessa nemendahóps en enginn mjög vel. Sá þáttur sem þátttakendur lögðu mesta áherslu til að styðja við nám ísl2 nemenda var markviss íslenskukennsla, eða 62,5% þátttakenda. Þá sögðust 35% þátttakenda leggja markvissa áherslu á íslenskan orðaforða þ.e. grunnorðaforða og orðaforða námsgreina, en enginn minntist á millilag orðaforðans. Um það bil helmingur þátttakenda sagði það mikilvægt að kennarar hafi færni til að veita ísl2 nemendum stuðning í móðurmálum þeirra. Það að aðeins lítill hluti þátttakenda telji sig ekki ná að mæta námslegum þörfum nemendanna gefur ástæðu til að ætla að hinir geri sér ekki grein fyrir því að nemendurnir þurfa meiri stuðning í íslensku til að ná velgengni í námi, ef miðað er við niðurstöður rannsókna sem sýna almennt hægar framfarir í íslensku hjá þessum nemendahópi yfir leik- og grunnskólaárin. Efla þarf hlut kennslu í íslensku sem öðru máli í kennaranámi og í starfsþróun kennara. Einnig er ljóst að auka þarf þekkingu og færni kennara í að vinna með íslenskan orðaforða.
Source: Skemman
Author: Erla Rún Jónsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Linguistics and Language
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029603419
