Work

Könnun á þekkingu, öryggi og hindrunum íslenskra skólahjúkrunarfræðinga til að sinna geðheilbrigði grunnskólabarna

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Áætlað er að um 20% barna og unglinga glími við geðraskanir. Afleiðingar ómeðhöndlaðra geðraskana meðal barna og unglinga hafa áhrif á vellíðan, lífsgæði, námsárangur og námsktækifæri. Vegna menntunar sinnar eru skólahjúkrunarfræðingar í kjöraðstæðum til að sinna geðheilbrigði barna og unglinga. \nTilgangur: Að kanna hversu öruggir og virkir íslenskir skólahjúkrunarfræðingar telja sig vera í að sinna geðheilbrigði barna og unglinga og hvaða hindrunum þeir mæta. \nAðferðir: Spurningalisti var sendur rafrænt til allra skólahjúkrunarfræðinga landsins sem voru 143 talsins og var svörunin 58,7% (n=84). Við úrvinnslu gagna var notast við lýsandi tölfræði, skífurit, krosstöflur og kí-kvaðrat próf. \nNiðurstöður: Um helmingur (48,8%) skólahjúkrunar-fræðinganna taldi sig vera mjög örugga/örugga til að sinna geðheilbrigði barna og unglinga. Þeir töldu sig vera óöruggasta í að veita nemendum reglulegan stuðning. Það voru 69,0% skólahjúkrunarfræðinga sem töldu sig vera virka í að sinna geðheilbrigði grunnskólabarna, en 73,8% upplifðu tímaskort og 69,0% töldu sig einungis verja 0-25% af tíma sínum í að sinna geðheilbrigði barna og unglinga. Helstu hindranir skólahjúkrunarfræðinga til að sinna geðheilbrigði grunnskólabarna var óöryggi, tímaskortur og einungis 32,1% töldu sig hafa fengið nægjanlega þjálfun. Það voru 62,4% sem töldu sig vera með nægjanlega þekkingu til að sinna geðheilbrigði barna og unglinga. Skólahjúkrunarfræðingar tilgreindu hvað þeir töldu sig þurfa til að sinna geðheilbrigði barna og unglinga betur. Þar kom helst fram að þeir þyrftu betri úrræði, handleiðslu og á þverfaglega teymisvinnu að halda. \nÁlyktun: Hlutverk skólahjúkrunarfræðinga í að sinna geðheilbrigði barna og unglinga hérlendis er mikilvægt en hefur lítið verið rannsakað. Í þessari könnun voru skólahjúkrunarfræðingar spurðir út í öryggi, hindranir og þekkingu þeirra á geðheilbrigði barna og unglinga. Mikilvægt er að rannsaka hlutverk þeirra nánar í tengslum við geðheilbrigði þar sem þeir gegna veigamiklu hlutverki í efla geðheilbrigði barna og unglinga.
Source: Skemman
Authors: Stefanía Ósk Margeirsdóttir 1991, Sigrún Elva Ólafsdóttir 1992
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029631615
Cites: 148
Cited by:
Related to: 10